Dagblaðið - 02.10.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
3
Landsdómur eða Alþingi
stöðvi stöðumælasektir
- ranglætið búið að standa í 13 ár og lög landsins margbrotin við innheimtu þeirra
, ,Ég sé mér ekki annað fært en að
óska eftir því opinberlega, að þau
yfirvöld sem í 13 ár hafa staðið að
ólöglegri innheimtu stöðumælasekta,
verði látin sæta landsdómi og ég
mun einnig gera ráðstafanir til þess
að málið verði tekið upp á Alþingi í
haust,” sagði Eggert Arnórsson,
Umferðar-
eyjurnar
burt og
bungurá
göturnarí
staðinn
— sjóndapur kvartar
yfirað eyjumar
sjáist illa í snjókomu
ogslæmu skyggni
Sjóndapur skrifar:
Nú fer skammdegið senn í hönd
og skyggni í umferðinni versnar þá
verulega. Snjókoma og hálka gerir
ökumönnum erfitt fyrir og þeir mega
hafa sig alla við að einbeita sér að
akstrinum. Því finnst mér skjóta
dálítið skökku við þegar verið er að
gera okkur bílstjórum erfiðara fyrir
með því að setja umferðareyjur hér
og þar um götur borgarinnar. Þessar
eyjur þjóna að því er mér virðist
tvennum tilgangi. Annars vegar að
gera gangandi vegfarendum auðveld-
ara að komast yfir umferðarþungar
götur og hins vegar að mjókka
göturnar og minnka þannig
umferðarhraðann. Fyrra atriðið er
gott og gilt, en hið síðarnefnda er mér
mikill þyrnir í augum.
Nú er ég enginn glanni, enda löngu
kominn af léttasta skeiði og þótt ég
sé enn með bílpróf er sjón mín ekki
upp á það bezta. Ég á oft erfitt með
að sjá umerðareyjarnar i rökkri
vetrarins og ekki bætir það úr skák
þegar þær eru huldar sjónum
bílstjóra i snjókomu.
í Bandaríkjunum veit ég að yfir-
völd hafa að miklu leyti horfið frá
því að nota umferðareyjar til þess að
minnka ökuhraðann, þess í stað hafa
verið gerðar bungur á vegina, sem
útiloka með öllu hraðan akstur. Mér
finnst að Islendingar gætu tekið
Bandaríkjamenn sér til fyrirmyndar í
þessu efni og látið af þessum sífelldu
þrengingum gatna og vega. Búið
frekar til bungur en eyjar, eða a.m.k.
komið fyrir blikkljósum á illa merkt-
um eyjum, svo ökumenn sjái þær í
tíma.
umboðs- og heildsali, í samtali við
DB.
„Margoft er búið að kæra þessa
innheimtu, en hvert yfirvaldið af
öðru vísar frá sér og á annað. Ríkis-
saksóknari hefur einn ákæruvald.
Með því að gefa ekki út ákæru gegn
þeim sem stöðumælalögin brjóta,
gerist hann brotlegur við landslög”.
Eggert kvaðst ekki sjá betur en að
. rekstur stöðumæla félli undir lög. nr.
51,2. maí 1968.
,, 1. kafla 2. gr. (a-lið).jafnframt vil
ég benda á 3. gr. og 4. gr. sörnu laga.
Einnig 2. kafla 5. gr. (a lið).
Ég spyr því viðkomandi yfirvöld,
hvernig fyrirtæki í landinu geti
uppfyllt þau skilyrði sem krafizt er í
lögum, þegar stöðumælar gefa alls
enga kvittum fyrir veitta þjónustu
sem þeim er þó skylt að gera sam-
kvæmt lögum.
Þá vil ég vekja athygli á 9. gr. svo
og sérstaklega 12. og 13. gr. sömu
laga.
Ekki veit ég hvaða gögn geti verið
bókfærð fijá fyrirtækjum fyrir
stöðumælagjöldum sem samrýmist
12. gr., þar sem stöðumælar uppfylla
ekki 13. gr. Ég vil vekja athygli á því
einnig að lögbrotasektir geta ekki
verið bókfærðar sem kostnaður.
Ég spyr því hvernig hægt sé að
greiða þær fjárkröfur er yfirvöld
krefjast af fyrirtækjum er brjóta lög
um stöðumæla, þar sem fyrirtækjum
er skylt að fara i einu og öllu eftir
bókhaldslögum?
Ekki get ég séð annað en að fjár-
kröfur yfirvalda séu ólögmætar, og
að greiðsla á sektum sé lögbrot.
Jafnframt vofir fjárdráttarákæra yfir
þeim sem draga úr sjóði fyrirtækisins
til greiðslu stöðumælagjalda (af
hálfu rík isskattstj.) án þess að mót-
taka kvittun sem bókhaldshæf er.
Ógjörningur er að sanna (í bókhaldi)
að því fé hafi verið varið til umrædds
kostnaðar.
Ég er því nauðbeygður til þess að
kæraþetta athæfi yfirvalda.
Mér þykir furðulegt að yfirvöld
skuli þvinga fram þá lögleysu á
fyrirtækjum jafnt sem almenningi til
greiðslu á sektum sem þessum með
dómstólahótunum.
Ég sé mér nú ekki annað fært en
að óska eftir þvi opinberlega hér og
nú, að viðkomandi yfirvöld er standi
að þessu verði látin sæta landsdómi.”
Svona byrja málin. Sektarmiði skrifaður og siðan byrja innheimtuaðferðirnar
með hótunum om dómsmeðferð.
FÖSTUDAGSKVÖLD
í JliHÚSINU ÍJIiHÚSINU
OPIÐ DEILDUM TIL KL10 I KVÖLD
MATVÖRUR
FATIMAÐUR
HÚSGÖGN
BYGGINGAVÖRUR
TEPPI
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Ótrúlega hagstasðir
greiflsluskilmálar á
flestum vöruflokkum.
Allt niflur i 20% út-
borgun og lánstimi allt
afi 9 mánuðum.
/AAAAAA
Jón Loftsson hf.
I Q3 i3 (
n®mssn i
Hríngbraút 121
>ími 10600
Frá 1. okt. verður opið: Mánud.-miðvikud. 9—18,\fimmtud.
9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12.
Rafn Pálsson, 11 ára: Vonandi vel.
Vonandi verða þeir Islandsmeistarar.
Þeir tapa kannski nokkrum leikjum en
þeir falla örugglega ekki. Valur og KR
falla.
Hermann Hermannsson, 13 ára: Alveg
æðislega. Þeir bara vinna alla leikina.
Þeir mala KR og KA og kannski Kefla-
vík lika.
Gunnar Tryggvason, 12 ára: Bara vel.
Ég er samt dálítið hræddur um að þeir
falli. En þaö verður gaman að sjá
Lárus Guðmundsson, Guðmund í
markinu hjá Fram og Martein Geirsson
keppa hér.
Kolbeinn Már Guðjónsson, 10 ára:Þeir
verða um miðja deild. Það verður
gaman að fá hin liðin vestur, sér-
staklega Fram og Víking. Það verður
gaman að sjá Guðmund, markmann
Fram. Ég heíd að ÍBÍ skori tvisvar hjá
honum.
Hilmar Þór Georgsson, 10 ára: Þeim
gengur mjög vel. Þeir detta alls ekki.
Þeir eru búnir að æfa svo vel.
Arnar Lárus Baldursson: Vel. Þeir
vinna marga leiki; KR, KA, Val og geta
unnið Fram hérna heima. Og alveg
örugglega Keflvíkinga. Keflvíkingar
verða sko malaðir.
Spurning
dagsins
Hvernig heldur þú að
ísfirðingum gangi í 1.
deild í knattspyrnu
næsta sumar?
— spurl á ísafirði