Dagblaðið - 08.10.1981, Side 2
2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981.
EIGNANAUST HF.
SKIPHOLTI5
SÍMAR 29555 OG 29558
OPIÐ KL 1-5 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA.
Baldursgata
2ja herb. ósamþykkt kjallaraíbúð, verð kr. 200.000,00.
Melgerði, Kóp.
3ja herb. 70 ferm risíbúð í tvíbýli, verð kr. 400.000,00.
Hörgshlíð
Einstaklingsíbúð til sölu. Verð tilboð.
Ljósheimar
3ja herb. íbúð á 4. hæð, 80 ferm, fæst helzt í skiptum fyrii
sams konar eign með stórum stofum.
Leirubakki
4 herb. plús eitt herb. í kjallara, mjög fallegt tréverk, vönd
uð eign, verð kr. 700.000,00.
Lækjarkinn
3 svefnherbergi plús tvær samliggjandi stofur og 2 stór her-
bergi í kjallara, alls 120 ferm, bílskúr, verð kr. 780.000,00.
Kaplaskjólsvogur
5 herb. íbúð á 4. hæð og í risi, alls 140 ferm, verð kr.
650.000,00.
Breiðás
5 herb. stór sérhæð, falleg ræktuð lóð, fagurt útsýni,
bílskúrsréttur, verðkr. 700.000,00.
Háaleitísbraut
4ra herb. íbúð á 4. hæð, 117 ferm. plús bílskúr, hugsanlegt
að taka tvær minni eignir upp í.
Kjarrhólmi
3ja—4ra herb. 100 ferm íbúð á 3 hæð, verð kr. 550.000,00.
Bjargartangi — Mosfellssveit
Sérhæð með bílskúr, 3 svefnherbergi, plús stórar stofur,
samtals 150ferm, verðkr. 700.000,00.
Sandgerði
Einbýlishús, 140 ferm plús 50 ferm bílskúr, verð kr.
850.000,00.
Sandgerði
3ja herb. 110 ferm íbúð í tvíbýlishúsi, verð kr. 240.000,00.
Óskum eftir
3ja herb. íbúð á Grundunum Kópavogi eða Fossvogi,
einbýlishúsi í gamla bænum , með bílskúr, einbýlishúsi
eða góðri sérhæð í Kópavogi, sérhæð eða raðhúsi í Heima-
hverfi, Langholti eða Laugarnesi.
LÓDIR:
Esjugrund — Kjalarnesi,
sökklar að raðhúsi, allar teikningar fylgja, búið að greiða
öll lóðargjöld, verð kr. 180.000,00.
Byggingarlóð í Garðabæ, verð kr. 150.000,00.
Byggingarlóð á Álftanesi 937 ferm byggingarlóð, verð kr.
150.000,00.
Byggingarlóð á Arnarnesi, rúmlega 1700 ferm byggingar-
lóð á fallegum stað.
Nánari uppl. á skrifstofunni, ekki í sima.
SKOÐUM OG METUM ÍBÚÐIR
SAMDÆGURS.
GÓÐ OG FLJÚT ÞJÓNUSTA
ER KJÖRORÐ OKKAR.
AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU
Á ÞRIÐJUDÖGUM 0G FIMMTUDÖGUM.
EIGNANAUST,
ÞORVALDUR LÚÐVlKSSON HRL.
Skyldu farþegar geta séð „kassastykki” I þessari þotu Fiugleiða? Hver veit.
Kassastykki,
aðgangur kr.
15.00! Flugleiðir
Plastískur skrifar:
Nú geta farþegar Flugleiða, þeir
sem fljúga „Kassablánka” — Kópa-
sker, eðá aðrar leiðir frá aðalstöðv-
um innanlandsflugs félagsins á
„alltof lágum fargjöldum” dundað
sér við að horfa á fjörug „kassa-
stykki” dansa í kjöltum sínum í há-
loftunum, ofar hæstu fjallstindum
Isafoldar.
Hvílíkur munur í þjónustulausu
landi! Einhver lausn hlaut að finnast
á umdeildum lokunartíma verzlana!
Ef að líkum lætur mun móðir Jörð
auglýsa nafnið Icelandair vítt og
breitt um landið, þegar snjóa leysir,
að vori.
Ekki enda vanþörf á, að háfjalla-
loftið sé auglýst með viðeigandi
orðum: ICELAND-AIR.
Það er aldrei að vita, nema einhver
auðugur laxveiðimaður sjái aumur á
fjárhagsvanda Flugleiða og vilji
bæta við þann fimmtán-kall, sem
landinn treystir sér til að sjá af til
breiðþotukaupa.
Hugmyndin er snjöll, öllum til
skemmtunar, en þó mest þeim, sem
fljúga til útlanda og éta og drekka
frítt í háloftunum, tollfrjálst, í boði
Flugleiða. — Nýir siðir með nýjum
mönnum.
Margt er Ukt með skyldum eins og þar segir. Hér er verið að brenna heilan hlaða af kannabisplöntum I Lfbanon.
SKORAARAÐHERRA
í OPNAR UMRÆÐUR
V
—segir Óm Sigf ússon og vill heyra skýringar yf irvaldsins á
ólögmæti kannabisef na
Örn Sigfússon hafði samband við
blaðið og vildi koma eftirfarandi á
framfæri:
Ég skora á menntamála- og dóms-
málaráðherra svo og Jón Thors að
mæta mér og minum aðstoðarmönn-
um í opnum umræðum um kannabis-
efni. Það er undarlegt að hér á landi
sé neyzla þessarar lífrænu jurtar
bönnuð með lögum á sama tíma og
stórhættulegt ólífrænt efni eins og
t.d. áfengi er selt í verzlunum á
vegum ríkisins. Hvernig má slíkt
vera?
Kannabis er viðurkennt efni um
allan heim, sem leiði til aukinnar
þekkingar á mannlegu eðli. Fimmti
hver íslendingur neytir eða hefur
neytt kannabisefna í einhverjum
mæli. Það er því kominn timi til að
ræða þessi mál á opinberum vett-
vangi og á óhlutdrægan hátt. Ég
endurtek áskorun mína til ofan-
greindra aðila.