Dagblaðið - 08.10.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981.
13
Kjallarinn
Sigurðsson
má telja fyrir beitingu kjarnorku-
vopna.
Þessa staðföstu stefnu þarf að
tryggja með milliríkjasamningum: ís-
land verður ekki í neins konar til-
fellum notað til árása á önnur ríki og
á móti koma milliríkjasamningar
(meðal annars við Sovétrikin) um að
gegn landinu verði ekki beint árásum.
Norðurlöndin verða öll að koma sér
saman um myndun kjarnorku-
vopnalauss svaeðis i þessu skyni. Hér
neytum við þeirrar sérstöðu okkar að
við erum enn sem komið er — í það
minnsta í opinberum yfirlýsingum —
laus við kjarnorkuvopn í landinu.
Sama gildir — að því sagt er — um
NATO-löndin Danmörku og Noreg.
Þriðja mál fundarins í Kaup-
mannahöfn var sambandið við sam-
herja okkar í ríkjum Varsjárbanda-
lagsins. Menn lögðu áherslu á mikil-
vægi þess að kynnast þessum löndum
og þeim þjóðum sem þar búa. Við
sækjumst ekki eftir að hlutast til um
málefni þessara ríkja en leggjum
jafnframt áherslu á að sjálfsögð
mannréttindi og lýðréttindi séu virt
þar ekki síður en annars staðar.
Hverjir berjast gegn vígbúnaði í
þessum ríkjum, hvar er þá að finna
og hvernig eigum við að halda sam-
bandi við þá? Greinargóð svör fund-
ust ekki við þessum spurningum, en
við munum leggja áherslu á að leita
eftir samstöðu við þá sem fylgja
okkur að málum austur þar. Um
stjórnvöld þar gildir liku máli og um
stjórnvöld á Vesturlöndum —
hverjum þykir sinn fugl fagur.
S) Eflum starf herstöðvaandstæð-
inga. Sameinaðir stöndum vér,
sundrungin bíður þeirra sem vilja
halda i einstrengingsleg sjónarmið og
hafna öllu samstarfi sem nær yfir
landamæri. Samtök herstöðvaand-
stæðinga þurfa nú að leggja aðrar
áherslur í málflutningi sínum en hing-
að til. Með því er ég ekki að segja að
ranglega hafi verið staðið að málum á
undanförnum árum.
Við höfum náð árangri með þvi að
vekja athygli á þeirri hættu sem her-
stöðvarnar bjóða heim. Nú þurfum
við að halda áfram og benda á raun-
hæfar leiðir í öryggismálum landsins.
Jafnframt þurfum við að treysta
samstöðuna með þeirri öflugu hreyf-
ingu sem nú rís í Evrópu. Þar eins
og hér er langtíma markmiðið kjarn-
orkuvopnalaus Evrópa. Fyrsta skref
okkar í þá átt er að Norðurlönd verði
kjarnorkuvopnalaust svæði.
Enginn stjómmálaflokkur má ná
undirtökum í Samtökum herstöðva-
andstæðinga. Þetta eru sjálfstæð
stjórnmálasamtök, sem hvorki eru
ætluð til að smala atkvæðum fyrir
einn eða annan stjórnmálafiokk né til
að treysta á að einn stjórnmálaflokk-
ur, öðrum fremur, sjái um að fram-
fylgja stefnumálum herstöðvaand-
stæðinga. í almennum kosningum
taka Samtök herstöðvaandstæðinga
ekki afstöðu til stjórnmálaflokka.
Þegar Alþingi eða aðrar stjórnar-
stofnanir fjalla um einstök málefni
sem varða stefnumál herstöðvaand-
stæðinga, styðjum við einungis við
bakið á þeim sem að okkar mati taka
rétta afstöðu.
Allt eru þetta ástæður þess að her-
stöðvaandstæðingum vex sífellt ás-
megin. Við sáum það í Friðargöng-
unin í júní og aftur i Stokksnesgöng-
unni í ágúst. Fjöldi þátttakenda var
meiri en oftast áður, nú mætti fólk á
öllum aldri, sem ekki hafði áður
tekið þátt í aðgerðum herstöðvaand-
stæðinga. Fjölmennum á landsráð-
stefnuna í ölfusborgum og eflum
Samtök herstöðvaandstæðinga!
Jón Ásgeir Sigurðsson
blaðamaður.
fslenzkum sjónvarpsáhorfendum
hefur undanfarið gefist kostur á því
að sjá, hvernig mál þróuðust í
harðvítugustuvaldabaráttu, sem háð
hefur verið í íslandssögunni, á
Sturlungaöld, í kvikmyndinni um
Snorra Sturluson. Ekkert manns-
barn á íslandi, sem komið er til
nokkurs vits og ára, farið að læra
íslandssögu, er sér ekki meðvitandi
um þessa vargöld, er menn voru
tilbúnir að fremja hvert tiltækt
ódæðisverk, jafnvel drepa skyld-
menni sín, til framgangs persónu-
legum völdum. Á Sturlungaöld voru
framin verstu mannanna verk í sögu
lands vors. Og í blindri valdagræðgi
gættu menn þess ekki, að versti þol-
andinn var þjóðin sjálf í heild sinni,
gjaldið fyrir valdagræðgi höfðingj-
anna varð freísis- og sjálfstæðismiss-
irinn. Gjaldið varð á áttunda hundr-
að ára erlend yfirdrottnun íslands.
Foringjar deila
í stærsta stjómmálaflokki
íslands, (ennþá) Sjálfstæðis-
flokknum, er ríkjandi Sturlungaöld.
Flokkurinn hefur skipzt í tvo hópa
kringum formann og varaformann
flokksins. Þessir tveir foringjar hafa
lengi deilt innan flokksins. Deilurnar
eru svo djúpstæðar og per-
sónubundnar, að ég held að það sé
almennt álit manna, að ekki verði um
heilar sættir milli þeirra að ræða.
Þriðji hópurinn, sem mundi treysta
Albert Guðmundsyni bezt, hefur
reynt að leiða þessar deilur hjá sér og
beðið átekta til þess að sjá hverju
framyndi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á
undanförnum áratugum verið sterk-
asta stjórnmálaaflið i landinu. Sjálf-
stæðisflokkurinn er eini stjórnmála-
flokkurinn, sem hefur haft á
stefnuskrá sinni einstaklingsframtak
og markaðsbúskap, það eina hag-
kerfi, sem samrýmzt getur hug-
myndum þjóðarinnar um vestrænt
lýðræðisþjóðfélag. Hann hefur
einnig verið eini stjórnmála-
flokkurinn, sem staðið hefur vörð
um íslenzka lýðveldið í öryggis-
málum, en ekki byggt afstöðu sína á
óskhyggju fjarri öllum staðreyndum
eða áhættuspilamennsku, sem engin
þjóð leyfir sér í sínum öryggismálum.
Því er framtíð íslenzku þjóðarinnar
undir því komin að Sjálfstæðis-
flokkurinn standi í framtíðinni
sameinaður og traustur í varðgæzlu
sinni um öryggi og framtíð vestræns
lýðræðisálslandi.
Sögulegt
mikilvœgi
Eins og framtíð Islands var á
Sturlungaöld undir því komin, að
Kjallarinn
Pétur Guðiónsson
^ „Eins og framtíð íslands var á Sturlunga-
öld undir því komin að íslenzkir höfðingj-
ar settu niður valdadeilur sin í milli, þá er frelsi
og framtíð íslands nákvæmlega eins í dag
undir því komin að forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins setji niður deilur sin í milli.”
íslenzkir höfðingjar settu niður
valdadeilur sín á milli, þá er frelsi og
framtíð íslands nákvæmlega eins í
dag undir því komin, að forystumenn
Sjálfstæðisflokksins setji niður deilur
sín í milli þannig að flokkurinn verði
sameinaður og styrktur til framtíðar-
átaka. Þetta er staðreynd í stöðu
mála í dag. Sjálfstaéðismenn verða að
skilja það sögulega mikilvægi, er þeir
standa frammi fyrir.
Ég hefi mikið rætt þessi mál við
fjölda sjálfstæðismanna undanfarna
mánuði. Það er samdóma álit allra,
er ég hefi rætt við, að ágreiningurinn
sé svo djúpstæður milli þeirra
tveggja manna, sem deilt hafa um
völdin í flokknum, og að fylgishópar
þeirra séu svo stórir, að hvorugur
þeirra megni að setja deilurnar niður
og sameina flokkinn. Eini
möguleikinn til sameiningar
flokksins sé að þeir víki báðir og nýir
menn taki við flokknum. Þessi
skoðun er einnig í fullu samræmi við
niðurstöður hvers velviljaðs óvilhalls
aðila, sem fenginn væri til leiðsögu í
svona vanda, og byggði leiðsögn sína
eingöngu á viðurkenndum reglum
stjórnfræðinnar. Ef þessir tveir
aðilar, sem um völdin hafa barizt á
Sturlungaöld Sjálfstæðisflokksins,
eru ekki fáanlegir til þess að draga
sig í hlé báðir, er árið 1264, ár Gamla
sáttmála, upp runnið í sögu Sjálf-
stæðisflokksins, og ef Ul vill annað
miðaldamyrkur i sögu íslenzku
þjóðarinnar. Þá Iiggur einnig ljóst
fyrir, að menn setja persónulegan
frama ofar hagsmunum flokks og
þjóðar, og með því einu eru þeir
búnir að dæma sig úr leik til
forustuverka Sjálfstæðisflokksins.
Framtíð
Sjálfstæðisflokksins
Því er það von min og ósk, að
draugur Machiavellis verði nú
kveðinn niður innan Sjálfstæðis-
flokksins. Honum á ekki í raun að
vera þar lífvænlegt, því málin liggja
svo Ijóst fyrir, og draugum á ekki að
vera vært í dagsbirtu. Það er ekkert
myrkur, sem umlykur þá Ijósu
staðreynd, að framtíð Sjálfstæðis-
flokksins og þjóðarinnar byggist á
því, hvort persónulegur metnaður
verður settur ofar framtíð flokks og
þjóðar. Lóðin eru komin á meta-
skálarnar. Þvi skal ekki trúað fyrr en
í fulla hnefana að allir þeir lærdóms-
og gáfumenn, sem fylla Sjálfstæðis-
flokkinn, láti þann sögustraum, sem
hefur nú þegar þrifið Sjálfstæðis-
flokkinn með sér, sem hann nú berst í
eins og hver annar leiksoppur í ref-
skák innanflokks valdabaráttu, að
þessir menn láti hann farast í boða-
föllum þessa sögustraums án þess
að ærlegt átak verði gert til þess að
bjarga honum úr þeim vissa voða, er
hann beljast nú í átt til.
Pétur Gufljónsson.
---------------------------------------\
Landsfundur Sjálfstædisflokksins:
LÁTUM ÞIÓDARHAG
GANGA FYRIR PER-
SÓNULEGUM METNAÐI
Gunnar Thoroddsen.
Geir Hallgrimsson.