Dagblaðið - 08.10.1981, Side 17

Dagblaðið - 08.10.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981. 17 „Engu líkara en við værum að koma hér iþriðja skipti „Það get ég svarið og þú mátt vel hafa það eftir mér að ég hef enn ekki kynnzt öðrum eins móttökum og við fengum hér í gaerkvöld,” sagði Sam Myers, söngvari og munnhörpuleikari Missisippi Delta Blues Band, er Dag- blaðið ræddi við hann eftir fyrri tón- leikana sem kvintettinn hélt hér á landi í síðustu viku. „Þegar ég fer að hugsa út í það er það einstakt að fólk sem við höfum aldrei leikið fyrir áður skuli vera farið að klappa okkur upp á svið áður en til okkur sást. Það var engu líkara en við værum að koma hingað i þriðja eðafjórðasinn.” Þeir sem sóttu tónleika Missisippi Delta Blues Band geta auðvitað bezt dæmt um það sjálfír en vist er að sjaldan hefur hljómsveit fengið jafn- góðar móttökur hérlendis hin síðari ár. Áheyrendur stöppuðu og klöppuðu, dilluðu sér og skóku í takt við hljóm- fallið. Stemmningin var einstök. Elmore James „Allir þeir sem leika blús i dag eða hafa gert undanfarin ár sækja sínar hugmyndir að meira eða minna leyti til Elmore heitins James. Hann er maður- inn á bak við blúsinn eins og við þekkj- um hann. Margir hafa viljað eigna BB King þennan heiður en hann — með fullri virðingu fyrir hæfileikum hans. — gerði ekki annað en að stæla James.” manna hafði sinn eigin stíl, sem þekkja mátti strax.” Rólegur en brosmildur Svo við víkjum sögunni aðeins aftur að Sam Myers þá er hann 45 ára gamall og verður 46 snemma á næsta ári. Þrátt fyrir að vera ekki eldri hefur sjónin svikið hann illilega og hann sér ákaflega illa — er næstum blindur. Hann notar geysilega sterk gleraugu og án þeirra væri hann harla ósjálfbjarga. En hann lætur það ekki aftra sér og er sérstaklega kátur. Rólegur að eðlisfari en það er stutt í kímnina i huga hans og hann er brosmildur í meira lagi. Gæða- legur karl. Myers hóf skólagöngu í smáborg um 20 mílur utan við Jackson í Missisippi og síðan lá leiðin um skólakerfíð rétt eins og hjá öðrum unglingum. Myers lék í lúðrasveitum á yngri árum og spilaði með skólahljómsveitum í sumarfriinu og nýtti þann tíma vel. ,,Ég kynntist fljótlega mörgum góðum og mætum mönnum en Elmore James var alveg sér á parti. Hann er sá maður sem hefn*- haft mest áhrif á mig af öllum. Hann var engum líkur og það er sannast sagna synd að honum skuli ekki hafa enzt aldur til að sjá árangurinn af starfi sínu.” — segirSam Myers, söngvaríog munnhörpuleikarí Missisippi Delta BluesBandT íviðtalivið Dagblaðið Sam Myers þenur munnhörpuna hressilega á tónleikunum á Borginni. DB-myndir Kristján örn. — Hvað um þær sagnir að aðeins svertingjar geti leikið blúsinn á hinn eina sanna hátt? „Johnny Winter getur leikið blús eins vel og hver annar og er hann þó ekki beint svartur á hörund,” segir Sam og skellihlær en verður siðan alvarlegur. „Þetta er ekki spurningin um hörundslit heldur aðeins hvaðan þú kemur — frá hvaða svæðum. Margir menn hafa skapað sér nafn innan blúsins og þekkirðu vel til er auðvelt að heyra hvaðan menn koma. Hins vegar held ég að flesta þá sem leika blús í dag skorti tilfinninguna, sem skiptir svo miklu máli i allri tón- list. Margir af þessum tónlistarmönn- um eru e.t.v. alveg með rétt „sánd” en tilfinninguna, innlifunina vantar. — Hverja telur þú fremstu blúsara heimsins? „Það er engin spuming að Elmore James stendur öllum framar. Hann var einstakur í sinni röð. Sonny Boy Will- iamsson, T-Bone Walker og þá einnig Jim Reed, sem var frábær. Hans St. Louis Blues er frábær. Howling Wolf má og nefna. Hver og einn þessara Að slappa af Undirritaður lagði þá spurningu fyrir Myers hvers vegna blúsarar héldu miklu lengur út í tónlistinni en aðrir. „Ég veit það nú eiginlega ekki,” segir Sam og dæsir. „Þetta byggist auðvitað allt á því að menn hugsi almennilega um sjálfa sig. Það skiptir ekki máli hvernig tónlist þú leikur. Þú verður að fá næga hvíld og talandi um slikt þá hef ég slappað einstaklega vei af hér á íslandi. Þetta er einkar viðkunnanlegur staður — þótt hér sé skrambi kalt — og mig undraði mjög að við skyldum vera fyrsta blúshljómsveitin sem léki hérna. Ég veit til þess að fjölmargar blús- hljómsveitir hafa flogið hér yfir án við- komu og jafnvel gert stuttan stanz hér án þess að spila. Það er synd því blús- áhugi er geysilega mikill hérna.” — Hvernig blús hefur þú mest gaman af? „Slow-tempó blús finnst mér vera skemmtilegri en það er líka til fullt af hraðari lögum sem unun er að leika. Við höfum annars miðað okkar pró- gramm við hvort tveggja því allt byggist á að gera hlustendunum til hæfis. Við myndum ekki ná eins mikl- um vinsældum með því að einskorða okkur við eina ákveðna tegund blús- tónlistar.” Harðari hljómur — Þið hafið ferðazt meira um en flestar aðrar blúshljómsveitir. Hvað veldur? „Við verðum náttúrlega að ferðast um til að halda vinsældum okkar. Það væri ekki gæfulegt að halda alltaf til í Jackson. Fólk myndi fljótt fá leið á okkur, hversu góðir sem við værum” og nú hlær Sam karlinn dátt. „Þetta er þriðja ferð mín með Missisippi Delta Blues Band til Evrópu á 9 ára ferli hljómsveitarinnar. Ég var að vísu ekki með frá byrjun. Við höfum misst þrjá menn úr af ýmsum ástæðum. Lee Crisp hætti, Laurel Missisippi hætti einnig svo og Poker-eyed Slim, sem varð að hætta heilsu sinnar vegna. Við vorum ekki alltaf með tvo gítarleikara og hér áður fyrr var „sándið” hjá okkur harðara og grófara en með tilkomu annars gítarleikara aukast möguleik- arnir og hljómurinn verður fyllri.” — Hvað finnst þér um rafmagnaða blúsinn? „Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti honum en kann samt alltaf betur við órafmagnaðan blús. Hins vegar verður að rafmagna hann upp ef ná á til stærri hóps fólks. Það gengur ekki að vera án rafmagns i stórum tónleika- sal. Tónlistin finnst mér hins vegar missa dálítið sinn persónulega blæ við að rafmagna hana.” Blúsinn er tónlist fólksins — Hvað um framtið blústónlistar i heiminum? „Blúsinn hefur alltaf verið sterkur i hugum fólks — allt frá því hann kom fyrst fram. Hann verður áfram sterkur vegna þess einfaldlega að þetta er tón- list fólksins. Það leggursína tilfinningu og tjáningu í hana og þannig lifir hún kynslóð eftir kynslóð. Blúsinn virðist vera á mikilli uppleið núna eftir dálitla lægð undanfarin ár en heimurinn er svo breytilegur i þessum efnum. Við gætum verið orðnir skitblankir á morgun,” segir Sam og slær hressilega á Iæfi ser. „Blúsinn hefur alltaf blundað í undir- meðvitundinni hjá fólki og það þarf ekki mikið til að vekja hann kröftug- lega upp,” sagði Sam og kveikti sér í vindlingi um leið. -SSv. Calvin Mikei bassaleikari.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.