Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Síða 2
4
í. óskaði hann síðan með velvöldum orðum, félaginu
og störfum þess blessunar í framtíðinni og var síðan
hrópað ferfalt húrra fyrir félaginu að ósk hans. Síðan
fór fram kosning á fundarstjóra og var formaður fé-
lagsins, Sig. Ein. Hlíðar, kosinn til þess starfa með
lófataki. Til vara Davíð Jónsson, Kroppi, sömuleiðis
með lófataki. Form. tilnefndi því næst til ritara þá
Baldv. Friðlaugsson, Hveravöllum og Stefán Vagnsson
bónda á Hjaltastöðum og var það samþykt.
Var þá gengið til dagskrár.
1. Til þess að athuga kjörbréf fulltrúanna var kosin
þriggja manna nefnd. Þessir hlutu kosningu:
Jón bæjarstj. Sveinsson.
Sigurður Jónsson.
Sr. Guðbrandur Björnsson, Viðvík.
Eftir dálítið fundarhlé skilaði nefndin áliti sínu og
taldi hún þessa menn rétt kjörna. Þessir sátu því
fundinn:
úr stjórn félagsins:
Sigurður Ein. Hlíðar, form.
Jakob Karlsson, ritari.
Stefán Stefánsson, gjaldkeri.
ásamt framkvæmdarstjóra félagsins ólafi Jónssyni.
FULLTRÚAR:
Úr Húnavatnssýslu:
Bf.fulltr. Björn Guðmundsson, bóndi, örlygsstöðum.
Úr Skagafjaröarsýshc:
Bf.fulltr. Séra Guðbrandur Björnsson, Viðvík.
Bf.fulltr. Sigurður Jónsson, bóndi, Skúfsstöðum.
Æf.fj. Stefán Vagnsson, bóndi, Hjaltastöðum.
Bf.fulltr. Björn Sigtryggsson, bóndi, Framnesi.
Bf.fulltr. Sveinn Stefánsson, bóndi, Tunguhálsi.