Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Side 5
7
Jón Jónatansson.
Séra Guðbrandur Björnsson.
Björn Guðmundsson.
5. Fundarstjóri bað fulltrúa þá, er komið hefðu á
fundinn eftir að kjörbréf hefðu verið úrskurðuð, að
skila gögnum sínum til kjörbréfanefndar. Eftir að hún
hafði athugað þau, lýsti hún þessa réttkjörna sem fuil-
trúa á fundinum:
Kristján Benjamínsson, bóndi, Tjörnum Eyf.
Sigfús Sigfússon, bóndi, Steinsstöðum. Eyf.
Björn Jóhannsson, bóndi Syðra-Laugalandi, Eyf.
6. Þá bar fundarstjóri upp svohljóðandi tillögu:
»Sem viðurkenningu á sérstökum dugnaði í stöðu
sinni sem framkvæmdarstjóri félagsins, leggur stjórn-
in til, að ólafi Jónssyni sé veitt 500.00 kr. launaviðbót
árlega og frítt húsnæði«.
Þessi tillaga var samþykt með öllum greiddum atkv.
7. Erindi frá fulltrúum:
a) Jón Gauti Jónsson lagði fram umsókn til Rækt-
unarfélagsins um 300.00 kr. styrk fyrir hönd Búnað-
arsambands Norður-Þingeyinga, og ennfremur aðra
umsókn frá Búnaðarfélagi öxfirðinga um 200.00 kr.
styrk til verkfærakaupa. Báðum þessum umsóknum
vísað til fjárhagsnefndar.
8. ólafur Jónsson framkvæmdarstjóri flutti því næst
fyrirlestur um framtíðarstarfsemi félagsins og var
hann þakkaður með lófataki af fundarmönnum. Um-
ræður urðu um erindið.
Fundarstjóri gat þess þá, að ekki yrði frekar starfað
að fundarmálum þann dag, þar sem nefndirnar yrðu
að fara að starfa að þeim málum, sem þeim hefði verið
falið, en bauð öllum fulltrúum að skoða gróðrarstöð
félagsins. Var þá fundi frestað til næsta dags.