Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Blaðsíða 52
54
Blómarækt.
Blómafræinu var öllu sáð í vermihúsinu, og plönt-
unum svo plantað þaðan í sólreit og svo út í garðinn.
Einæru blómin, sem plantað var út, náðu flest góðum
þroska, voru sum farin að blómstra í júlí. Af blóma-
fræi, sem úti var sáð, blómstraði meiri parturinn en
ekki alt.
Hnúða af Anemonum og Ranunclum höfum við
sett undanfarin vor og gefist vel, er mikil prýði að
þeim í skrúðgörðum.
Fjölæru blómin stóðu sig nokkuð vel í vor,. það hafði
lítið dáið af þeim í vetur. Var því með mesta móti hægt
að láta burtu af ýmsum fjölærum plöntum.
Mest af f jölæru blómunum náði góðum þroska og
bar falleg blóm.
Bergenia var að byrja að blómstra um miðjan apríl,
. en blómknapparnir kólu, svo hún kom aldrei út blóm-
unum sínum og var mikil eftirsjón að því, því hún er
ein af okkar fegurstu vorblómum.
Stjúpurnar blómstruðu í maí-byrjun og hafa blómstr-
að í alt sumar og verður fegurð þeirra og fjölbreytni
varla oflofuð.
Túlípanlaukar voru settir niður í október í fyrra-
haust og gafst það vel. Eg held næstum að hver einasti
laukur hafi borið blóm.
Nokkuð af inniblómum hefur verið alið upp í vermi-
húsinu og hafa plönturnar verið seldar bæði haust og
vor.
Matjurtarækt.
Matjurtimar spruttu með seinna móti í sumar, var
• þó margt af þejm sem gaf viðunandi góða uppskeru.
Kálinu var sáð í vermihúsinu og plantað svo í sólreit.
Út í garðinn var því plantað fyrripartinn í júní og