Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Síða 17
félagsins á búnaðarfélagsstarfsemina í Norðlendinga-
fjórðungi lokið. Eg vil nú sýna fram á, að þessi skoð-
un er á algerðum misskilningi bygð og að það er þvefrt
á móti ætlast til og nauðsynlegt, að náin samvinna
haldist milli Ræktunarfélagsins og búnaðarfélagsskap-
arins á Norðurlandi. Ræktunarfélagið, búnaðarsam-
böndin og búnaðarfélögin keppa að nákvæmlega sama
marki — eflingu landbúnaðarins — en hafa aðeins
mismunandi hlutverk að leysa í þeirri sameiginlegu
baráttu. Hlutverk Ræktunarfélagsins er, með kerfis-
bundnum tilraunum að leita að nýjum, hagkvæmum og
arðvænlegum aðferðum við störf landbúnaðarins og
láta bændunum í té, jafnskjótt og hægt er, alt nýtt,
sem fram kemur við rannsóknir þessar, en búnaðar-
samböndin og undirdeildir þeirra eiga að breyta ár-
angri tilraunanna í hagnýtar framkvæmdir. Það er því
í fylsta máta nauðsynlegt, að mjög náin viðkynning og
samvinna sé á milli þessa félagsskapar og með tilliti
til þessa er það ákvæði nú sett inn í lög Ræktunarfé-
lagsins, að formenn búnaðarsambandanna og búnaðar-
þingsfulltrúar í Norðlendingafjórðungi, skuli vera
réttmætir fullti'úar á aðalfundi félagsins. Þessir aðilar,
sem gera má ráð fyrir, að ávalt séu leiðandi menn í
landbúnaðarmálefnum sinna héraða, fá á þennan hátt
tækifæri til að kynnast, fylgjast með og hafa áhrif á
starfsemi Ræktunárfélagsins og félagið getur á hina
hliðina á margvíslegan hátt hagnýtt sér praktiska
reynslu og víðtæka þekkingu þessara manna á búnað-
arháttum héraðanna við val verkefna og aðra tilhög-
un á sinni starfsemi.
Bein afleiðing af tilraunastarfi Ræktunarfélagsins
er, að félagið verður ávalt að taka mikinn þátt í leið-
beiningastarfsemi og búnaðarfræðslu á Norðurlandi,
2*