Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Qupperneq 23
25
ótvírætt, að notagildi búfjáráburðarins eykst til mik-
illa muna, þegar hann kemst niður í jörðina á þennan
hátt, samanborið við yfirbreiðslu. Að ýmsu leyti var
fyrirkomulag þessara tilrauna ófullkomið og mörgum
atriðum, viðvíkjandi þessari áburðaraðferð, ósvarað og
hefur því félagið tekið þessi spursmál upp til nýrrar
rannsóknar. Tilraunin er í eftirfylgjandi liðum.
1. óhreyft, yfirbreiðsla 15. þús. kg. mykja, 7500 kg.
þvag árlega.
2. Plægt, yfirbreiðsla 15. þús. kg. mykja, 7500 kg.
þvag árlega.
3. Plægt, undirburður 30 þús. kg. mykja, yfirbreiðsla
7500 kg. þvag árlega.
4. Plægt, undirburður 60 þús. kg. mykja, yfirbreiðsla
7500 kg. þvag árlega.
5. Plægt, undirburður 90 þús. kg. mykja, yfirbreiðsla
7500 kg. þvag árlega.
6. Plægt, undirburður 90 þús. kg. mykja, engin yfir-
breiðsla.
Hver liður er endurtekinn 6 sinnum. 2. liðurinn á að
sýna áhrif plægingarinnar einnar á uppskeruna. 3. lið-
urinn hefur eftir 2 ár fengið jafnmikinn áburð og 1.
og 2. liðurinn. 4. liðurinn eftir 4 ár og 5. liðurinn eftir
6 ár. 6. liðurinn hefur eftir 6 ár fengið jafnmikið af
mykju og 1. og 2. liðurinn, en þar sem hann fær enga
yfirbreiðslu, verður heildaráburðarmagn hans miklu
minna. í sambandi við tilraun þessa voru gerðar at-
huganir um, hve mikla vinnu það útheimti að plægja
og ganga frá plógstrengjunum aftur og reyndust það
að vera 10 manna dagsverk og 9 hesta dagsverk á ha.
Síðari athuganir hafa þó leitt í ljós, að á stærri svæð-
um og með hagkvæmari aðferðum er hægt að færa
þessar tölur niður um alt að /3. Kemur hér hið sama