Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Side 37
37
líkamshlutum plöntunnar og þeirra líffæra, sem hún hefur
frá náttúrunnar hendi. Hið síðara skilgreinir og lýsir lífs-
starfi hinna einstöku líffæra, sem hver planta hefur.
í líffærafræði jurtanna er greint á milli hinnar ytri bygg-
ingar einstaklinganna og hinnar innri byggingar þeirra líf-
færa, sem plantan hefur. Hver plöntutegund hefur sín sér-
einkenni í byggingu rótarinnar, stönglanna, blaðanna og
blómanna. Þessi atriði eða séreinkenni eru í flestum tilfell-
um þýðingarmikil í sambandi við aðlögunarhæfni jurtanna
og gegna því mikilvægum hlutverkum í þróun þeirra. Rót-
in þroskast með tilliti til jarðvegsins, eðlisástands hans og
næringarefna, sem í honum finnast. Stönglar og stoðvefir
liafa því hlutverki að gegna, að einstaklingurinn þoli átök
veðurs. Blöðin verða mismunandi í ytri byggingu með tilliti
til að þjóna sem bezt aðalhlutverki sínu, kolsýrunáminu, og
til að stjórna því, að vökvaþrýstingur haldist eðlilegur með
því að takmarka útgufun.
Þekking á hinni innri byggingu er eigi síður nauðsynleg.
Hún felur í sér vitneskjuna um það, hvernig frumur plantn-
anna eru byggðar til að þjóna því hlutverki sem bezt, sem
þeim er ætlað að leysa. í öðru lagi er nauðsynlegt að vita,
hverjar frumutegundir byggja upp ákveðna vefi jurtanna, og
Jivernig vefirnir eru samansettir. í þriðja lagi er nauðsynleg
vitneskjan um, hverjar veftegundir byggja upp hvert líffæri
plöntunnar.
Þessa er hér getið til að við gerum okkur ljóst, að lífsþarfir
jurtanna eru fjölbreyttar, og að það er enginn liægðarleikur
að uppfylla þær allar við almenna ræktun á þann hátt, að
hvert lífsskilyrði sé fyrir hendi á kjörstigi fyrir allar þær
plöntutegundir, sem saman eru ræktaðar, þegar hey er fram-
leitt af fleiri tegundum fóðurjurta, sem gera ólíkar kröfur til
lífsskilyrðanna.
Öllum jurtum er ljós og loft nauðsynlegt vegna koltvísýr-
ingsins, sem þær vinna úr loftinu. Hitamagnið á gróðrartíma-
bilinu þarf að ná vissu marki, til að jurtir ná fullum þroska.