Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Blaðsíða 46
46
Samlíf eða symbyose, eins og það heitir á erlendu máli, er
þýðingarmikið atriði við alla ræktun jurta af ertublómaætt-
inni. Köfnunarefnissöfnun með þeim hætti er engu þýðing-
arminni en sjálfstæð köfnunarefnisvinnsla bakteríutegunda,
sem áður voru nefndar. Helztu samlífsbakteríur eru tegund-
ir, sem tilheyra flokkunum Rhisobium og B. radicicola. Þær
geta einnig lifað og unnið köfnunarefni úr andrúmsloftinu
án samlífs við jurtir, en þar sem jurtir af ertublómaættinni
vaxa, komast þær inn í rótarhárin og mynda hnúða utan á
rótum jurtanna. Þegar bakteríumar hafa staðsett sig þar,
breyta þær útliti, verða stærri en þeim annars er eðlilegt að
vera. Eru það nefndir bakteroider. Þetta ástand hefur því
hlutverki að gegna að vera bakteríunni vörn gegn þeim áhrif-
um frá plöntunni, er stefnir að því að eyðileggja þær, um
leið og hún hagnýtir sér köfnunarefni þeirra. Jurtin gefur
bakteríunni næringu, kolefnasambönd, sykur og lífrænar sýr-
ur, en þær binda aftur köfnunarefnið í lífræn sambönd, sem
jurtin getur notfært sér, þannig, að séu skilyrði góð fyrir
bakteríurnar, þarf jurtin ekki aðra köfnunarefnisnæringu, en
sé mikið auðleyst köfnunarefni í jarðveginum fyrir, er það
meginregla, að það dregur úr köfnunarefnissöfnun bakterí-
anna.
Af köfnunarefninu byggir jurtin upp eggjahvítuefni sín.
Lífsskeið jurta og baktería hefur sín takmörk, þessar líf-
verur dyeja, og þá hefst annar þáttur á ferli köfnunarefnisins
á hringrás sinni í ríki náttúrunnar.
Við dauða lífveranna hefst aftur sundrun eggjahvítuefn-
anna. Jurtir og jurtaleifar falla til jarðar og rotna. Þegar um
ræktaða jörð er að ræða, hafa þær líka verið nýttar til fóðurs
og manneldis, og nýtast þar til áframhaldandi uppbyggingar
nýrra eggjahvítuefna í líkömum dýra og manna. En hvort
heldur sem gerist, þá kemur að því, að eggjahvítuefnin
sundrast aftur vegna tilverknaðar annarra tegunda af bakterí-
um en hér hefur verið lýst. Kemur þá að þeim þætti, sem við
í daglegu máli köllum rotnun, þótt þar komi áð vísu við