Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Blaðsíða 67
67
Zinkeitranir geta komið fram í gripum frá fóðri, t. d. frá
vatni og mjólk, sem geymt hefur verið í ílátum, sem eru
zinkhúðuð.
10. Kobolt.
Efni þetta hefur líffræðilega þýðingu fyrir dýrin, og eins
og oft hefur fyrr átt sér stað, er það af hendingu einni, að
þýðing þess var veitt eftirtekt, en í kjölfar þess fylgdu víð-
tækar rannsóknir fleiri vísindamanna margra þjóða, og hafa
þeir að nokkru leyti lyft hulunni af þýðingu efnisins frá líf-
fræðilegu sjónarmiði. Skulu helztu drættir þeirrar sögu rakt-
ir hér.
í vesturhluta Ástralíu kom fram búfjársjúkdómur, sem
varð tilfinnanlegur skaðvaldur á sauðfé, einkum þó á lömb-
um, en þó einnig á fullorðnu fé og ungum nautgripum.
Sjúkdómur þessi nefndist enzootie marasimus.
Eitt af einkennum hans var blóðskortur. Það var því eðli-
legt, að við lækningar yrði fyrst fyrir að reyna járnmeðul.
Var því tekið upp að bera á ræktunarlönd og beitilönd
limonit, sem er jarðefni og inniheldur mýrarrauða, en hann
er mismunandi sýringar af járni. Við notkunina kom í ljós,
að það var ekki sama, hvað viðvék verkunum hans, hvaðan
efnið var fengið. Frá vissum stöðum kom hann að gagni, en
frá öðrum stöðum var hann gagnslaus. Tveir vísindamenn
efuðu því, að það væri járnið, sem væri virkur þáttur í þessu
máli, og hófu rannsókn á því, hvort nokkur annar málmur
væri í hinu nothæfa limonit, sem ekki fyndist í þeirri tegund,
er ónothæf var. Þeir leystu jámmálminn upp í veikri saltsýru
og felldu út 4 mismunandi málmsölt og gáfu af þeim söltum
í fóðri gripanna af hverju fyrir sig, sem svaraði til þess magns
af limonit, sem hafði haft læknandi áhrif. Þá kom í Ijós, að
sá hluti, sem felldur var út sem zinksalt hafði bætandi áhrif
á sjúkdóminn, en þeir fundu þó strax, að það var ekki zink-
ið, sem var þessa valdandi, heldur kobolt, sem áhrif hafði,
en það var til staðar í örsmáum mæli í saltinu. Hreint kobolt-
5*