Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Síða 74
74
er byggður á hverjum stað. í þessum kafla er geysimikill
fróðleikur um jarðveg og helztu einkenni hans í vmsum
landshlutum, og má raunar segja, að hann sé þverskurðar-
mynd af rannsóknum höfundar á undanförnum árum. í
kaflanum eins og öðrum eru margar ágætar myndir, og verð-
ur um þær sagt í einu lagi, að þær hafa tekizt með afbrigð-
um vel, enda vandað til pappírs og prentunar. Þá er hér
eftir því sem ástæður leyfa gerð grein fyrir útbreiðslu hvers
jarðvegsflokks, en slíkt er mikilvægt öllum þeim, sem bók-
ina nota.
Eins og áður er á drepið fylgir bókinni jarðvegskort. Upp-
dráttur þessi er hinn fyrsti sinnar tegundar, sem gerður er
af Islandi, og verður því undirstöðuheimild um útbreiðslu
jarðvegstegunda hér á landi. Var uppdrátturinn búinn und-
ir prentun vestur í Ameríku og litprentun hans kostuð þar.
Á uppdrættinum eru meginjarðvegsflokkarnir markaðir með
skýrum litum, en undirdeildir með tölum, er hvort tveggja
að uppdrátturinn er til augnayndis og fljótlegt að átta sig
á honum. En vitanlega getur ekki verið, nema um mjög
grófgert yfirlit að ræða á svo litlum uppdrætti. Kemur þar
tvennt til, á litlum uppdrætti verður ekki nema fátt eitt
sýnt, ef um sæmilegan skýrleik á að vera að ræða, og svo
skortir enn nákvæma rannsókn á miklum hluta landsins,
þrátt fyrir ötult starf dr. Bjöms og félaga hans. Örfáar at-
hugasemdir hefði ég þó viljað gera við uppdráttinn. í Saur-
bæ vestra, á Reykjanesi við Breiðafjörð, og á Barðaströnd og
Rauðasandi hefði ég talið að votlendi hefði átt að vera ríkj-
andi litur. f Fnjóskadal hins vegar mólendi í stað votlendis,
en öfugt aftur á móti í Reykjadal í Þingeyjarsýslu og á all-
stóru svæði á Fljótsheiði. En vitanlega verður slíkt ætíð mats-
atriði, þar sem gera verður miklu efni skil á litlum upp-
drætti. En eins og fram var tekið, er uppdrátturinn hinn
prýðilegasti og mikilvægt framlag til þekkingar á landi voru.
Aftast í bókinni eru nokkrir kaflar einkunr efnafræðilegs
eðlis og um áburðarnotkun.