Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Page 91
92
Tafla III. Meðalafköst fullmjólkandi kúa í sjö ór í hverju
einstöku félagi í S. N. E.
Nf. Hrafnagilshr. Nf. Saurbæjarhr.
Ár Mjólk Fituein. Röð Mjólk Fituein. Röð
Year Milk Fat units Rank Milk Fat units Rank
1953 3249 12474 4 3034 11262 11
1954 3354 12549 5 3133 11404 11
1955 3445 12978 7 3260 12269 11
1956 3702 13994 4 3515 13091 9
1957 3650 13903 5 3548 13177 10
1958 3542 13511 5 3390 12483 11
1959 3539 13249 7 3520 13190 8
Aukning, Increase
1953—'59 290 775 486 1928
Meðalröð
Ranking average 4 11
Meðaltal, Mean 3497 13237 3343 12411
að þar má telja að allir búendur færi mjólkurskýrslur og er
það til fyrirmyndar. Reiknuðum árskúm og fullmjólkandi
kúm hefur fjölgað í öllum félögunum, en þó nokkuð mis-
jafnt, minnst í þeim félögum, er fjarst liggja, svo sem Grýtu-
bakkahrepps, Saurbæjarhreps og Svarfdæla. Þó er nokkur
íjölgun í Svarfaðardal en fækkun í Saurbæjarlireppi og mun
það eina félagið, sem svo er ástatt um. Tafla III sýnir nokkra
framför í öllum félögunum, en þó mismikla. Það er þó bæp-
ið, að leggja mikið upp úr tölunum um aukninguna, sem
fegnar eru við samanburð á fyrsta og síðasta árinu, sem tafl-
an nær yfir, því að árferðismunur getur haft þar veruleg á-
hrif. Réttari samanburð á félögunum gefur vafalaust meðal-
tal allra sjö áranna. Á töflu IV er félögunum raðað eftir sjö
ára meðalafköstum fullmjólkandi kúa og þá miðað við fitu-
einingar. Sýnir taflan, að mikill munur er á meðalafköstum
í félögunum og að þau félögin, er fjarst liggja frá miðstöð-
inni og fram að þessu hafa mest byggt á eigin nautahaldi,
93
Table III. Mean yield of cows fally in milk during seven years in
each society within the S.N.E.
Nf. Öngulsstaðahr. Mjólk Fituein. Röð Milk Fat units Rank Nf. Mjólk Milk Svalbarðsstr. Fituein. Röð Fat units Rank Nf. Grýtubakkahr. Mjólk Fituein. Röð Milk Fat units Rank
3367 12474 3 3306 12553 2 3029 11652 8
3514 13041 2 3434 12858 3 3102 11824 9
3591 13489 4 3546 13811 3 3253 12629 9
3776 14235 2 3749 14185 3 3296 12739 11
3794 14481 2 3731 14233 3 3529 13194 9
3688 13855 3 3637 13460 6 3526 13055 8
3658 13899 3 3565 13572 6 3627 13642 4
291 1425 259 1019 598 1990
2 3 9
3627 13639 3567 13825 3337 12676
eru verst á vegi stödd. Jafnvel þótt reynt sé að vanda nauta-
valið sem bezt, hefur reynslan nú sýnt, að ekkert er einlilýtt
í þeim efnum, nema sá árangur er nautið sjálft gefur, en fá
sveitanaut ná nú þeim aldri að fullreynd verði, áður en þau
eru felld, auk þess sem áhrif hvers einstaks nauts verða þar
venjulega bundin við mjög þröngt svæði, sem oftast þrengist
með aldri nautsins. Áhrifa frá sæðingarstöðinni gætir þó alls
staðar nokkuð, en þó langminnst í þeim hreppum, er fjarst
liggja, en þar fer nú sæðingum líka ört fjölgandi nema í
Saurbæjarhreppi, þar sem þeim fer stöðugt fækkandi. Þetta
er þeim mun alvarlegra, er þess er gætt, að nautahafd virðist
þar mjög handahófslegt. Auk þess eru þar margir bændur,
sem engar mjólkurskýrslur færa og má því gera ráð fyrir,
að ástandið í nautgriparæktinni sé þar lakara en skýrslurnar
sýna.
Þótt verulegur munur sé á meðalafköstum kúnna í ein-
stökum félögum S. N. E., þá verður þó munurinn ennþá