Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Side 134
140
og auðveldir, og sala beint frá bændum til annarra aðila
en mjólkurbúanna mun ekki þekkjast. Hvað hin búin, með
svartflekkóttu kýrnar og Jerseyblendingana áhrærir, þá er
útkoman sízt skárri hjá þeim fyrrtöldu en lítið eitt hagstæð-
ari hjá þeim síðarnefndu. Þegar á allt er litið, getum við
mjög vel unað þessum samanburði, og þar með er afsönnuð
sú staðhœfing, að mjólkurskýrslurnar séu marklausar.
Enginn má þó halda, að allt sé í stakasta lagi hvað skýrsl-
urnar áhrærir. Skýrslur eru alltaf misjafnar, og mjólkur-
skýrslumar eru þar engin undantekning. Skýrslur, sem bár-
ust af starfssvæði S. N. E. 1959 voru alls 296. F.in varð ekki
tekin með, því að eigandi hennar flutti inn á sambands-
svæðið á miðju ári. Atta öðrum er sleppt vegna mjög mikils
ósamræmis, en sumir eigendur þeirra hafa mikla mjólkur-
sölu beint til neytenda, en magn óþekkt og hefði því verið
mjög villandi að taka þá með í meðaltalið. Af þeim 287
skýrslum, er þá eru eftir, eru 52 ónákvæmar, þar af er fitan
óeðlilega há á 36, mjólk á 12 og bæði fita og mjólk á fjórum.
Þessar skýrslur eru þó allar teknar með í útreikningana og
má vel vera, að nokkrar skýringar gætu lagfært ágalla sumra
þeirra.
Nokkuð virðist ábótavant töku sýnishorna til fitumæl-
inga, en í því sambandi verður þó að hafa það hugfast, að
fitumælingar í sambandi við skýrsluhaldið eru svo fáar, að
stundum geta þær gefið alranga niðurstöðu, þótt allt sé í
lagi með töku sýnishorna.
Það er allmikið verk að gera þann samanburð, er ég liér
hef rætt um, en hann er svo mikilsverður, að ég tel sjálfsagt
að gera hann árlega framvegis, og er þess vænzt, að allir
skýrsluhaldarar vilji stuðla að því, að hann gefi sem réttasta
og eðlilegasta mynd.
Kynbæturnar. Eins og það er auðvelt að tortryggja mjólk-
urskýrslurnar, er hægur vandi fyrir þá, sem af einhverjum
ástæðum vilja vanmeta kynbæturnar, að fullyrða, að sú stór-
fellda aukning á afurðum kúnna, sem orðið hefur hjá S.N.E.