Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1960, Síða 146
154
SamandregiS yíirlit.
Framanrituð skýrsla fjallar um helztu viðfangsefni S. N. F..
— Sambands nautgriparæktarfélaga Eyjafjarðar — á undan-
förnum árum og þann árangur, sem náðzt hefur.
A. Úr mjólkurskýrslum. Sýnir þróunina samkv. mjólkur-
skýrslum bæði í heild og í einstökum félögum frá ári til árs
(tafla E A—E), en sá árangur er dreginn saman á töflu II,
III og IV. Töflur þessar sýna, að afurðaukning á fullmjólk-
andi kú hefur orðið 434 kg af mjólk eða 1733 fitueiningar
síðustu 3—7 árin, en nokkuð mismunandi í félögunum. Mis-
munur á einstökum búum og á einstökum kúm er þó enn-
þá geysimikill, samanber töflu V og VI, og sýnir sá mismun-
ur hve miklir möguleikar -eru enn á sambandssvæðinu til
aukins afraksturs af nautgriparæktinni.
B. Sœðingarnar. Þessi þáttur fjallar um árangur og aukn-
ingu sæðinga á félagssvæðinu síðustu tíu árin (tafla VII),
hvernig árangurinn hefur orðið í hverju félagi 4—5 síðustu
árin (tafla VII a), svo og hvernig hin ýmsu naut á sæðingar-
stöðinni hafa reynzt, hvað frjósemi áhrærir. Sýna þessar
töflur, að árangurinn af sceðingunum hefur verið mjög góð-
ur og fremur farið batnandi og gildir þetta nokkuð jafnt
í félögunum. Frjósemi nautanna, sem notuð hafa verið, hef-
ur reynzt mjög áþekk. Á einstöku býlum getur árangurinn
þó orðið mjög misjafn frá ári til árs, og verður helzt að rekja
þær sveiflur til mismunandi ástands hjá kúnum (tafla IX).
C. Afkvœmarannsóknir. í þessum kafla er gerð grein
fyrir afkvæmarannsókn á nautunum Þela og Fylki. Bæði
nautin gáfu mjög góða raun, svo sem skýrslur XII og XIII
sýna. Kvígurnar eru aldar upp á stöðinni, og sýnir tafla X
vöxt þeirra og þroska á ýmsum aldursskeiðum, allt fram á
1. mjólkurskeið, samanber einnig 3. mynd. Athugun á
mæðrunum sýndi, að mæður dætra Þela voru til muna lé-
legri h-eldur en mæður Fylkisdætra. Jafnar þetta að, nokkru