Búnaðarsamband Austurlands - 01.09.1906, Page 28

Búnaðarsamband Austurlands - 01.09.1906, Page 28
28 hefði það reynst og svo myndi það reynast framvegis. Eg segi ekki þetta Skaftfellingum einum til ámælis, því að það eru fleiri en þeir, sem hafa litla trú á sáðslétt- um og annari nýbreytni í búnaðarháttum. Helzta áhugamál Nesjamanna í búnaði er, að bæta hrossarækt sína, einkum kynferðið, og hafa þeir í því skyni í hyggju, að girða fyrir Laxárdal, sem gengur upp úr miðri sveitinni — og tilheyrir Bjarnaneshjáleig- um —, og láta stóðið ganga á dalnum. Með hveijum skilmálum hlutaðeigendur leyfðu afnot dalsins til stóð- göngu, var enn óráðið, en vonandi verður það ekki mál- inu til fyrirstöðu, því að þetta er eitt hið fyrsta skilyrði fyrir þvi, að hægt sé að koma nokkurri reglu á hrossa- ræktina. Búnaðarfélagið í Nesjum heldur búfræðing vor og haust, en á vetrum kennir hann börnum i fundahúsi hreppsins. I Lóni sóttu flestir meðlimir búnaðarfélagsins fund. Félagið heldur búfræðing vor og haust, og er aðal-starf hans túnasléttun. Jarðyrkjuverkfæri á fólagið engin, en því var vel tekið, að kaupa hin nauðsynlegustu verkfæri til næsta vors. Eitt af því, sem vekur eftirtekt ókunnugra, einkum í vesturhluta sýslunnar, er húsafjöldinn á túnunum. í Öræfum eru sumstaðar 30—40 peningshús á túninu, og er stærð þeirra auðvitað í öfugu hlutfalli við tötuna. Tilsýndar líta þau út eins og haugar hingað og þangað um túnið. Til afsökunar höfðu menn það, að hægra væri, að koma áburðinum á túnið með þessu fyrirkomulagi, og það er auðvitað satt, einkum þegar okki er til nein kerra, og ef til vill engar hjólbörur heidur — eins og sumstaðar á sór stað —, en þetta er þó lítil afsökun, því eflaust mundi það borga sig, að hafa húsin færri

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.