Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Síða 1
Skýrsla
um adstöðu og störf Búnaðarsambands Austurlands
frá 26. júní 1920 til 23. júní 1921.
1. Aðstaða sambandsins. Þetta ár er sérstætt
í sögu þess, þar sem það er eina árið síðan það byrjaði
að starfa, sem það ekki hefur haft ráðunaut nema að litlu
leyti.
Metúsalem Stefánsson, sem veriö hefur ráðunautur sam-
bandsins nokkur ár, fór frá, en ráðunautur fékst ekki með
þeim kjörum, sem stjórnin sá sér fært að ganga að, enda
félst aðalfundur á þá ráðstöfun. Þrátt fyrir það, hefir sam-
bandið getað fullnægt óskum, sem fram hafa komið um
leiðbeiningar, og vísast til ársritsins um þau störf.
Þetta ráðunautsleysi hefir að vísu aukið mikið störf
stjórnarinnar, en eftir ástæðum líklega heppilega ráðiö. Nú
hefur sambandið fengið Lúóvík Jónsson ráðunaut Búnaðar-
félags Islands í sauðfjárrækt, fyrir ráðunaut yfirstandandi ár
(frá 1. febrúar að telja til jafnlengdar næsta vetur).
2. Tilraunastöðin var ekki starfrækt þetta ár, þar sem
neitað hafði verið um nauðsynleg beitarnot í Eiðalandi, svo
hægt væri að starfrækja stöðina til frambúðar, en stjórnin
væntir þess að nú sé eitthvað að liðkast um það mál. Hús
stöðvarinnar voru því leigð Eiðaskóla og Guðgeiri kennara
Jóhannssyni leyfð notkun landsins.