Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Qupperneq 1

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Qupperneq 1
Skýrsla um adstöðu og störf Búnaðarsambands Austurlands frá 26. júní 1920 til 23. júní 1921. 1. Aðstaða sambandsins. Þetta ár er sérstætt í sögu þess, þar sem það er eina árið síðan það byrjaði að starfa, sem það ekki hefur haft ráðunaut nema að litlu leyti. Metúsalem Stefánsson, sem veriö hefur ráðunautur sam- bandsins nokkur ár, fór frá, en ráðunautur fékst ekki með þeim kjörum, sem stjórnin sá sér fært að ganga að, enda félst aðalfundur á þá ráðstöfun. Þrátt fyrir það, hefir sam- bandið getað fullnægt óskum, sem fram hafa komið um leiðbeiningar, og vísast til ársritsins um þau störf. Þetta ráðunautsleysi hefir að vísu aukið mikið störf stjórnarinnar, en eftir ástæðum líklega heppilega ráðiö. Nú hefur sambandið fengið Lúóvík Jónsson ráðunaut Búnaðar- félags Islands í sauðfjárrækt, fyrir ráðunaut yfirstandandi ár (frá 1. febrúar að telja til jafnlengdar næsta vetur). 2. Tilraunastöðin var ekki starfrækt þetta ár, þar sem neitað hafði verið um nauðsynleg beitarnot í Eiðalandi, svo hægt væri að starfrækja stöðina til frambúðar, en stjórnin væntir þess að nú sé eitthvað að liðkast um það mál. Hús stöðvarinnar voru því leigð Eiðaskóla og Guðgeiri kennara Jóhannssyni leyfð notkun landsins.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.