Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Síða 3
5
6. Pantanir verkfæra, áburðar og sáðtegunda hafa ver-
ið litlar, en framkvæmdar eftir óskum.
7. Af verkfærum tilraunastöðvar og sýningadeildar var
selt alt sem úrelt var, með það fyrir augum að afla aftur
nýtízku áhalda.
8 Að túnmælingum hefur einn maður unnið þetta ár,
og er nú mælingum lokið í báðum sýslunum, en uppdrættir
ekki komnir til stjórnarinnar úr Stöðvar- Búða- og Fá-
skrúðsfjarðarhreppum en að sjálfsögðu tilbúnir.
9. Engar óskir komu fram á árinu um bændanám-
skeið, en ýmsra orsaka vegna sá stjórnin ekki tiltækilegt
að stofna til þeirra.
10. Leitað var að sverði af svarðleitarmanni sam-
bandsins, Þorkeli búfræðingi Jónssyni, í þrem hreppum á
Fljótsdalshéraði, á 18 bæjum, með meira og minna árangri.
11. Um leiðbeiningarstarfsemi vísast til skýrslna starfs-
manna í Ársritinu.
12. Byrjað er á að vinna land í Hallormsstaðaskógi
til fræræktartilrauna, verður landið girt á þessu sumri og
sáð í það D: einn þriðja úr dagssl. Skógræktarstjóri Gutt-
ormur Pálsson, sem á mikinn þátt í að þetta mál er kom-
ið á þennan rekspöl, hefir lofað sambandsstjórninni aðstoð
eftir föngum, og væntir stjórnin hins bezta af því.
13. Sýningar á hrútum fóru fram á sambindssvæðinu
frá Langanesi að Breiðdalsheiði og Norðfirði. Ráðunautur
Lúðvík Jónsson var á sýningunum til leiðbeiningar og um-
sjónar. Sýningar fórust fyrir í nokkrum hreppum á þessu
svæði. Búnaðarfélag íslands veitti fé til verðlauna móti
hreppsfélögum.
Þá er eftir á sambandssvæðinu syðri hlutinn. Er á-
kveðið að fara þess á leit við búnaðarfélagið að þær sýn-
ingar komist í framkvæmd á næsta hausti.