Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Qupperneq 11
13
2. Reikningur.
a. Reikningur yfir tekjur og gjöld Búnaðarsambands Aust-
urlands fyrir ’árið 1920, var lagður fram og samþyktur
með eftirstöðvum til næsta árs, kr. 10825,93.
b. Eignareikningur Búnaðarsambands Austurlands, 31.des-
ember 1920, var einnig framlagður og samþvktur með
skuldlausri eign, kr. 23123,78.
3. Pantanir.
Fundurinn samþykti svohljóðandi tillögu:
Fundurinn ályktar að fela stjórninni að halda áfram
að panta fyrir búnaðarfélög og einstaka menn áburð,
útsæði, fræ. verkfæri og girðingarefni, með sama fyr-
irkomulagi og verið hefir, enda kynni stjórnin sér
verðlag á ofangreindum vörum og tilkynnir búnaðar-
félögum svo fljótt sem hægi er.
4. Féla gsja rðyrkja.
Eftir nokkrar umræður kom fram svohljóðandi tillaga:
a. Fundurinn telur rétt að halda áfram félagsjarðyrkju á
líkan hátt og verið hefur, þó með þeirri breytingu, að
framvegis verði lögð áhersla á það, að alvinna það sem
unnið er, og leysa verkið sem allra bezt af hendi, sömu-
leiðis, að búnaðarfélögin leggi til stærri jarðyrkjuáhöld,
svo sem plóg, herfi, akurslóða o^ valtara. — Var hún
samþykt í einu hljóði.
b. Fundurinn felur stjórn sambandsins að styrkja, allveru-
Iega, búnaðarfélög á sambandssvæðinu til kaupa á stærri
jarðyrkjuáhöldum, svo sem plóg og herfi. Búnaðarfé-
lög utan Flótsdalshéraðs skulu fyrst um sinn sitja fyr-
ir styrknum. — Samþykt með 7 atkv.
Þegar hér var komið fundinum, bættist einn fundar-