Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Síða 12
14
maður við, Guttormur Pálsson, fulltrúi búnaðarfélags Norð-
ur-Valla og Skóga.
5. Gródrarstöðin.
Samþykt var svohljóðandi fundarályktun:
Fundurinn felur stjórn Sambandsins að fá fullgerða
samninga um beitarafnot í Eiðalandi, á þeim grund-
velli, sem þegar hefir verið lagður, samkvæmt 1. lið
í geröabók Samb. 22. júní 1921.
6. Tilraunastarfsemi.
Svohljóðandi tillaga var samþykt:
Fundurinn felur stjórn Sambandsins að undirbúa, á
þessu ári, væntanlega tilraunastarfsemi í Gróðrarstöð-
inni á Eiðum næstkomandi ár. Jafnframt felur fund-
urinn stjórninni, aö halda áfram tilraunum utan
gróðrarstöðvar, í líka átt og þegar hefir verið byrj-
að á.
7. Stofnun klœðaverksmiðju.
FJytjandi þess máls var Gísli Helgason bóndi, Skógar-
gerði, er lýsti yfir því, að nú væri vöknuð hreyfing í þá
átt að koma á fót klæðaverksmiðju á Austurlandi, skýrði
hann þá hlið málsins all ítarlega, lét í ljósi skoðun sína
um málið, og óskaði því síðan góðs gengis á fundinum.
Eftir allmiklar umræður um málið samþykti fundurinn svo-
látandi tillögur:
a. Fundurinn er því mjög hlyntur, að komið verði upp tó-
vinnuvélum á Austurlandi, og heitir málinu stuðning sín-
um, svo sem við verði komið.
b. Fundurinn heimilar stjórn Sambandsins, að styrkja und-
irbúning þessa máls með alt að 200 kr. úr sambands-
sjóði.