Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Qupperneq 13

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Qupperneq 13
ts 8. Svarðleitir. Fundurinn felur stjórn Sambandsins að ráða svarðleit- armann framvegis, svo menn á sambandssvæðinu geti átt kost á svarðleitum. 9. Hrútasúningar. Fundurinn skorar á sambandsstjórnina, að stuðla að því, að Búnaðarfélag íslands láti fara fram á þessu ári hrútasýningar á þeim hluta svæðisins, er ekki átti kost á þeim síðastliðið haust. — Tillagan samþykt í einu hljóði. 10. Fóðurtryggingarmálid. Á aðalfundi Sambandsins árið 1920 var stjórninni falið að íhuga og undirbúa málið undir næsta aðalfund, stjórn- in lagði þ í fram svohljóðandi ályktun: Stjórnin sér þau ein hagnýt ráð, til þess að tryggja búfé manna gegn fóðurskorti, að séð verði fyrir með einni ráðstöfun, að jafnan sé til á haustum á hafnar- stöðvum eða öðrum hentugum stöðum, nægur korn- og kraftfóðurforði, ef annað haldkvæmt fóður þrýtur Síðan spnnnust um málið all langar og ítarlegar um- ræður, og fundurinn komst að þeirri niðurstöðu, að nú mætti ekki lengur dragast að skera fyrir rætur þessa stóra og illkynjaða þjóðarmeins, og að tæplega yrði sú bót full- ráðin á annan hátt en þann, sem um ræðir í tiljögu stjórn- arinnar. Var þá kosin 3ja manna nefnd til þess að semja fundarályktun fyrir fundinn, og kosningu hlutu: Gunnar Pálsson, Þorsteinn Stefánsson og Páll Hermannsson. En er nefndin hafði lokið starfi sínu, lagði hún fram svolátandi fundarályktun: Fundurinn lítur svo á, að brýnasta nauðsyn sé til þess, að nú verði með öllu komið i veg fyrir það, að

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.