Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 14

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 14
16 fóður búpenings geti þrotið í landinu. Hyggur hann að það verði gert með því; a. Að heyásetningarmálum verði komið í sem bezt horf heima fyrir í sveitunum, og til foröagæslu valdir þeir menn, er líklegastir eru til þess að hafa áhrif á sveitunga sína, bæði um góðan ásetning og skyn- samlega og mannúðlega meðferð búfjárins. b. Að trygt verði með einm ráðstöfun, er gildir um land alt, að jafnan sé til á haustum á hafnastöðum og öðrum hentugum stöðum nægur korn og kraft- fóðurforði, sem grípa megi til, ef annað fóður skyldi • reynast ófullnægjandi. Líklegustu leiðina til þessara framkvæmda telur fundurinn, að ríkið hefði einka- sölu á rúgi og rúgmjöli, og annaðist þá jat'nframt um fóðurtrygginguna. Var svo gengið til atkvæða um nefndartillöguna og hún samþykt með 9 atkv. gegn 2. Einn fundarmaður bættist enn við, Pétur Sigurðsson, búnaðarfélagsfulltrúi Tunguhrepps. 11. Verðlaun fyrir búpeningshirðingu. Svolátandi tillaga var borin fram og samþykt: Fundurinn telur rétt að haldið sé áfram, að veita verðlaun fyrir góða hirðing og fóörun búpenings gegn því að lagt sé fram ekki rninna fé til verðlaunanna frá hreppunum eða annarsstaðar að. 12. Leiga á gróðrarstöðvarhúsinu. Fundurinn felst á gerðir stjórnarinnar í þessu máli, og væntir þess að húsleigan komi ekki í bága við þarfir sam- bandsins. 13. Sjóðsmyndun. Fundurinn heimilar Sambandsstjórninni að taka alt að

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.