Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Page 18
20
skoðanir. Eg fór um hreppana, heimsótti flesta bændur,
skoðaði fé þeirra og valdi úr því ær og hrúta til undaneld-
is. Á umreið minni um sveitirnar, var svo tilhagað, að
fundi var komið á á hentugum stöðum í hreppunum. Þar
flutti eg eríndi — að mestu leyti fjárræktarefnis — og vakti
að síðustu máls á nokkrum öðrum áhuga- og framfara
búnaðarmálefnum, er ásamt fyrirlestrinum skyldi takast til
umræðu að erindinu loknu. Fundir þessir voru alstaðar vel
sóttir, og oftast hófust umræður um málefni þau, er lögð
voru fyrir þá. — Vík eg þá næst máli mínu að aðalefninu.
Ferðin hófst í Reyðarfirði 5. marz og var farið sem
leið liggur yfir Þórdalsheiði og þvert yfir Skriðdalinn yfir í
Fljótsdal, og lagði eg leið mína fyrst um hann.
I Fljótsdal virtist mér fé yfirleitt fríðara og jafnvænna
en fé annarstaðar í ferðinni. Að vísu standa Fljótsdæling-
ar betur að vígi að fjárræktinni eu nærsveitungar þeirra
austanmegin Lagarfljóts, þar eð þeir hafa mikla og góða
afrétti, og sveitin farsæl og hagasæl.
Svipfallegast og einna hreystilegast fé í Fl.ótsdal sýnd-
ist mér á Arnheiðarstöðum, hjá Sölva Vigfússyni, og hjá
Páli Ólafssyni á Arnaldsstöðum. en hvorki var það eins
stórt né afurðamikið að sjá og fé þeirra Páls Sigfússonar,
Melum og Halldórs Stefánssonar, Hamborer mér virtist
að mundu hafa þyngst fé í dalnum. Að loknu ferðalagi
um Fljótsdalinn fór eg um Velli og Skóga, lá þar næst
hendi að líta á hið nýstofnaða fjárbú Skógarmanna.
Um haustið (1920) gerðu nokkrir bændur í Skógum
samtök sín á milli um stofnun fjárræk+arbús, til styrktar
fjárrækt sinni í framtíðinni. — Sýnir það lofsverðan áhuga
þeirra á fjárbótunum. Hver hluthafanna valdi 2 af sínum
beztu ám til búsins og auk þess voru 2 ær keyptar hjá
Haildóri Stefánssyni, Hamborg í Fijótsda! ásamt einum
hrút, er hlotið hafði 1. verðlaun á hrútasýningu þar um