Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Page 22
24
fyrir það eða pantaði þessi áhöld: sláttuvél, skurðpál (Egg-
erts Briems), lagardælu, fræsáningsvél og garðplóg með
tilheyrandi arfa- og hlújárnum. Auk þess fekk eg smíðað
í Reykjavík, meðan á sýningunni stóð, hnífakerfi. — Eitt
þessháttar hefur veriö smíðað áður og reynst vel á plægða
jörð. Á þessu voru gerðar litlar hreytiugar frá frumsmíð-
inni — til bót ’. Herfið er ekki fullreynt ennþá, en fekk
gott orð á sig hjá plægingarmanni sambandsins, Björgólfi
Qunnlaugssyni, síðastliðið sumar. Eg hefi góðar vonir um
að þetta herfi, skurðpállinn og garðplógurinn reynist hag-
nýt verkfæri fyrir íslenzkan landbúnað. — En um það get-
ur sambandið síðar borið vitni, þegar það hefur til hlítar
ar reynt verkfærin.
Eftir Reykjavíkurförina tók eg til starfa í Fljótsdals-
héraði, um 20. júlí. Lá þá fyrst fyrir mér að mæla bún-
aðarfélagsjarðabætur í Skriðdaishreppi, Skógum og Valla-
hreppi. Var mælt fyrir 8 bændur í Skriðdal, 8 í Skógum
og 9 á Völlum.
Fræræktartil raun á Hallormsstað. Menn hafa
löngum fundið til þess að grasræktin væri hér stopul með
erlendu fræi og nauðsyn bæri til þess, ef hægt væri, að
afla fræsins í landinu. Sambandið tjáði sér skylt, eigi síð-
ur en öðrum búnaðarsamböndum landsins, að taka málið
til íhugunar og lét í því skyni girða og vinna dálítinn blett
á Hallormsstað, síðastliðið sumar.
Hið umrædda land var plægt í maímánuði, en girt og
fullunnið til sáningar í enduðum júlí. — En þó vantaði fræ
og áburð, svo ekki var hægt að sá fyrr en 4. og 5. ágúst
Alt svæðið naut samkyns og jafn mikils áburðar, sem var:
50 kg. fosforsýru, 25 kg. kali og 25 kg. köfnunarefnisá-
buröar; en því var skift í 5 viðlíka reiti til sáningar og í
þá var sáð sem hér segir: 1. axhnoðgrasi, 2. vallarfaxgrasi,
3. vallar-sveifgrasi, 4. háliðagrasi og 5. hásveifgr. Auk