Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Qupperneq 32

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Qupperneq 32
34 Uppskeran. Að henni er unnið sem öðru við fé- lagsgarðyrkjuna að miklu leyti með hestum og verkfærum (kartöfluupptökuvél). Aftan á vélinni er hr ífur, sem ristir undir moldarhryggina um leið og henni er ekið áfram, og yfir skeranum snúast forkar, er kasta moldi. ni með kar- töflunum í til hliðar og breiða úr þeim á jörðina. Við kartöfluupptökuna þarf nokkurn mannafla, ef verk- ið á að ganga fljótt; mun ekki af veita að 15—20 manns sé til þess að taka upp undan vélinni. A Englandi vissi eg til að skólabörn vora títt fengin til þeirra verka, í frístund- um sínum á laugardögum; og þurfti þá 4 fullorðna menn með þeim til þess að stjórna vélinni og verkinu. Sáning og áburðarbreiðsla útheimtir einnig nokkurn mannakraft í fáa daga, ef um mikk garðyrkju er að ræða, en að öðru leyti getur einn maður, með hestum og verkfærum gegnt öl'um garðyrkjustörfunum á stóru svæði, segjum 10—20 dagsláttum eða jafnvel meir. A því geta menn séð hve stórkostlegur vinnusparnaður er við félagsgarðyrkjuna eða hverja þá garðyrkju, sem rekin er í stórum stíl með hest- um og verkfærum, í stað kartöfluræktar í smáum görðum með handafla. Eg hefi oft fundið til þess, í mínum ferðalögum um sveitirnar, hve kartöfluræktin yfirleitt er skamt á veg kom- in hjá oss. Á því geta þó verið heiðarlegar undantekning- ar á stöku stöðum eða heimilum. — Sumstaðar hefur mér gefist á að líta allgóða og vel hirta kartöflugarða, en víða hefur mér virst, sem einhverskonar ólag mundi vera á kar- töfluræktinni. Og ástæður til þess geta verið ærið marg- ar og misjafnar, svo sem vinnufólksekla, áburðarskortur, frosthætta, veðurhæð, óhentug garðstæði o. m. fl. Til þess að ráða einhverjar bætur á slíku, hefur mér dottið i hug félagsgarðyrkja á heppilegum stöðum. Æskilegt væri, ef hreppabúnaðarfélög og stærri búnaðarsambönd vildu ljá

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.