Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Page 35
37
Egilssonar og Hallfríðar Einarsdóttur. Skipu-
lagsskrá og reglugerð sjóðsins, er birt í Arsritinu 1918—
19, bls. 28—32,
6. Leiðbeiningar og störf ráðunauts. Sjá
Ársritið 1918—’l9, bls. 67.
7. Pantanir verkfæra, áburðar, útsæðis. Sjá um þær í
Ársritinu 1918—’l9, bls. 68.
8. Aðrar umsóknir og málaleitanir til Sambandsins, er
menn kunna að hafa fram að bera.
Þess er að vænta, að allir þeir sem landbúnað stunda
hafi áhug•; og þö.f á öllu því, er stutt getur og bætt at-
vinnu þeirra. Sambandið er stofnað í þeim tilgangi. Sam-
bandsdeildirnar bera það uppi. Fulltrúafundir ráða öllu um
stefnu þess og störf. Mest er undir því komið, að deild-
irnar og deildarmeðlimirnir hafi vakandi áhuga fyrir um-
bótastarfseminni og sjái og velji þar réttar leiðir.
Ahuginn hrindir henni áfram, tómlætið stingur henni
svefnþorn. Allar sannar umbætur á sviði landbúnaðarins
gera land:ð betra og byggilegra, þær eru því frá þjóðhags-
legu sjónarmiði, sá heilladrýgsti arfur, sem vér, er land-
búnað stundum, getum látið eftir oss til niðja vorra og
fósturjarðar, um leið og þær styðja og efla vorn eigin hag.
— Á meðan áhi ginn og viljinn eru vakandi, munu verk-
efnin ekki vanta.
Stjórnin