Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1975, Síða 103
JÓHANN GUNNAR ÓLAFSSON
LfSING VESTMANNAEYJA
FRÁ 1704-1705
Eftir séra Gissur Pétursson á Ofanleiti
I
Árni Magnússon prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og sekreteri (skjalasafns-
ritari við ríkisskjalasafnið) var einhver mesti fræðimaður á íslenzk málefni og önnur
og bóka- og handritasafnari, sem uppi hefur verið meðal íslendinga. Hann var óþreyt-
andi við að afla allra gagna um landssöguna, þjóðhætti og landið sjálft.
Það leikur ekki á tveim tungum, að fyrir hvatningu hans hafa til orðið tvær elztu
héraðslýsingar, sem nú þekkjast: Lýsing Ölfushrepps frá 1703 eftir Hálfdán Jónsson
lögréttumann á Reykjum og lýsing Vestmannaeyja eftir séra Gissur Pétursson á Ofan-
leiti frá 1704-1705. Verður hér reynt að gera grein fyrir handritum þeim, sem varð-
veitzt hafa af Vestmannaeyjalýsingunni, og fleiri atriðum í því sambandi.
Kunnugt er nú um fjögur handrit af lýsingunni, og eru þau þessi, raðað eftir aldri,
eins og síðar munu færð rök að: 1 Háskólabókasafninu í Ösló, UB. 1528 4to, í Lands-
bókasafni íslands, Lbs. 123 4to, í Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn, Ny kgl. saml.
1677 4-to, og Árnasafni, MSteph. 55 4-to.
Tvö þessara handrita eru myndskreytt, og verða þau sérstaklega gerð að umtalsefni.
II
Árið 1702 fól konungur þeim Árna og Páli Jónssyni Vídalín lögmanni að gera
jarðabók um allt ísland, og unnu þeir að henni til 1712 með nokkurri verkaskiptingu,
en þá var Árni kvaddur til Danmerkur, og kom hann ekki eftir það til Islands.
í öndverðum maímánuði 1704 fór Árni út í Vestmannaeyjar og dvaldist þar um
fimm vikna skeið. Vann hann að gerð jarðabókarinnar um Vestmannaeyjar, og er sú
bók til í eiginhandarriti hans. Notaði hann einnig tímann til þess að kynna sér hag
eyjarskeggja, og sér þess víða merki í tillögum hans og álitsgerðum til stjórnarinnar
í Kaupmannahöfn. Einnig endurskoðaði hann fjárhag Landakirkju og meðferð kaup-
manna á fjármunum hennar. En þeir voru fjárhaldsmenn kirkjunnar og reikningshald-
arar.
Þá safnaði hann örnefnum og ýmislegum upplýsingum úr sögu Vestmannaeyja og
fékk til liðs við sig séra Gissur Pétursson prest á Ofanleiti (1689-1713). Þá hefur
hann eflaust farið þess á leit við séra Gissur, að hann skrifaði lýsingu Vestmannaeyja.
Aftan við handrit að lýsingunni, sem varðveitt er í Ósló, er ritað þetta bréf til Árna: