Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1975, Qupperneq 113
PAUL MORGAN
BUNDIÐ FYRIR ÍSLENDING:
GUÐBRANDSBIBLÍA í IIAFNARBANDI
Sagan af Guðbrandi biskupi og biblíu hans hefir ekki legið hulin mönnum síðari
ára,1 en samtímabókbönd á þeim eintökum, sem enn má finna á söfnum, hafa eigi
verið rannsökuð sem skyldi, og er hér reynt að leggja dálítið af mörkum til þessa máls.
Ekki sleppti Guðbrandur biskup hendinni af biblíunni, er prentun var lokið, heldur
fékk hann lærðan bókbindara frá Hamborg til Hóla, sem batt mörg eintök af bókinni
og kenndi ýmsum iðn sína um leið. Einnig voru um hundrað eintök send til Kaup-
mannahafnar til þess að láta setja þau þar í praktband.2 Þegar óvenjufallega bundið
eintak kom í leitirnar í bókasafni Lincoln College, Oxford,3 datt þeim sem þetta ritar
fyrst í hug, að hér væri um eitt slíkra stássbundinna eintaka að ræða, og hóf hann
því að elta uppi öll þau eintök, sem finnast á Bretlandi. Við nánari athugun kom þó í
ljós, að eintak Lincoln College var nátengdara Guðbrandi biskupi en flest önnur, sem
um er vitað, og féll þar að auki ekki í neinn flokk upphaflegu bókbandanna frá 1584,4
en bandið ennfremur svo merkilegt, að vert var af þeim sökum einum að lýsa því
sérstaklega.
Skal það nú gert samkvæmt forsögn, er Howard Nixon samdi vegna lýsingar á bók-
um Broxbourne safnsins.
Spjöld: Stœrð: 396X260X100 mm.
Efni: Brúnt kálfskinn yfir jöfnuð tréspjöld, prýtt silfri, sem nú er að mestu bundið
súrefni. Silfur var nokkuð oft notað til prýði í Danmörku og Þýzkalandi á viðhafnar-
band um þetta leyti;5 þannig eru dálitlar eftirstöðvar af því á eintaki St. John’s Col-
lege, Cambridge, og á allmörgum eintökum Konunglega bókasafnsins í Kaupmanna-
höfn.6 A fremra spjaldi er sporöskjulaga mynd, nú að mestu afmáð, en var kannski
Kristur í Tign Sinni (Majestas-mynd), með flúruðum hornum. Utan við er umgerð
úr fjórum myndaböndum til skiptis við ósilfruð strikabönd; myndir eru i) (innst)
hringmynda veltistimpill, 4 mm breiður, ii) veltiborði 120X7 mm, á eru fjórar mynd-
ir, og sveigmynduð bönd á milli; myndir eru nakinn karlmaður, er leikur á hörpu,
hálfur engill, [rómverskur?] hermaður og fugl, iii) 16 mm víður veltiborði og á
burstarmynd einu sinni upp hvora hlið, en tvisvar efst og neðst, iv) veltiborði 120X7
mm, á honum hringar sig meiður, og vaxa á honum akörn og granötur. Ofan og
neðan við miðflötinn er letrað HALLGRIMUS og THEODORI og sitt hvorum megin
8