Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1975, Side 122

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1975, Side 122
122 HORFUR í AMERÍSKUM BÓKASAFNAMÁLUM Hverjar þessar vísbendingar eru og hversu þeim verði tekið í söfnunum, það er enn á athugunarstigi í Bandaríkjunum. Það er auðvitað erfiðast fyrir okkur, sem erum orðnir gamlir í hettunni, að hreyta til, og bókavarðaskólarnir hafa fallizt á þörfina og komið á fót vinnustofum og stofn- unum, efnt til stuttra námskeiða, framhaldsnáms fyrir þá, er lokið hafa meistaraprófi, og leitað annarra bragða, er verða mættu til að veita okkur þá skólun, sem við margir þörfnumst í viðureigninni við þessa galvösku veröld. Umskiptin hafa verið snöggari og valdið minni áhyggjum en ætlað var fyrir tveimur mannsöldrum. Og eitt höfum við lært og það sem afarmiklu máli skiptir: hin nýja tækni sparar ekki fé í gallhörðum peningum, heldur fáum við að sama skapi meira sem við verjum auknu fé til hennar. Arangur miðað við kostnað merkir ekki endilega, að hann náist fyrir minna, heldur að það sem vinnst verði miklu meira. Með öðrum orðum: hin nýja tækni mun kosta meira, en allt bendir til, að hún muni vel svara kostnaði. En vélvæðingunni fylgir annað, sem er öllu erfiðara viðfangs. Þegar horfið er að gersamlega ólíkum skráningarháttum og aðferðum við upplýsingamiðlun, hefur það margvísleg áhrif á starfslið og alla tilhögun og getur því leitt til þess, að stokka verði upp núverandi starfslið og skipta á annan veg með því verkum. Færri bókaverðir og fleiri tæknimenn er ein leiðin, færri sérþjálfaðir starfsmenn í flokkun og skráningu og fleiri kerfisfræðingar er önnur, í sumum tilvikum er það gert að algeru skilyrði, að miklu fámennara starfslið afkasti enn meira verki. Hér er því um eins konar iðn- byltingu í smáum stíl að ræða, og viðbrögð sumra eru áþekk. Það eru þessir nútíma Luddítar,1 sem hyggjast leysa vandann með því að láta vélarnar keyra í strand (eða að minnsta kosti eyðileggja þær, svo að lítið beri á); þá er stefnt að aukinni hlutdeild starfsliðs í stjórn safnanna, svo að ekki verði farið ómanneskjulega að einstökum starfsmönnum, þegar lagt er á ráðin og ákvarðanir teknar um störf þeirra; í gangi eru og aðgerðir í ætt við afskipti verkalýðsfélaga, er miða að því að vernda núverandi starfsmenn gegn hvers konar skerðingu af völdum tækninnar á rétti þeim og sérréttind- um, er þeir nú hafa. Samtök sérlærðra starfsmanna hafa ekki enn hlotið almenna viðurkenningu í Bandaríkjunum, og sú hugmynd að ganga í verkalýðsfélag vefst fyrir mörgum bókavörðum og öðru sérlærðu fólki, og koma þar til bæði heimspekilegar og sálfræðilegar ástæður. Eins og verða vill á slíku breytingaskeiði, hafa talsverð átök og glundroði fylgt þessari aðlögun og hagræðingu; og þeir, sem búa sig undir nú á dögum að stýra bókasöfnum, þurfa víslega öllu fremur til að bera þekkingu á samn- ingum verkalýðsfélaga, innbyrðisafstöðu starfsmanna og vísindalegri stjórnun fyrir- tækja en hinni fræðilegu hlið bókasafnamálanna. Eg hygg, að enn meiri áherzla verði lögð, þegar fram í sækir, á stjórnunarþáttinn í menntun bókavarða. Vélvæðing getur hefnt sín á allt annan veg, þannig að hún verði til að skaða mjög verulega hugmyndir, sem menn hafa gert sér um góða bókasafnaþjónustu. Ég á við 1 Luddítar (e. Luddites) voru hópur vélaraanna, er 1811 og 1816 efndu til uppþota í því skyni að eyðileggja gufuknúna vefstóla.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.