Vísbending


Vísbending - 17.06.1995, Side 6

Vísbending - 17.06.1995, Side 6
til sjávar hvarf hann einfaldlega til Vesturs- heims. Þiisundir fluttust til Anteríku á þessum árum. Hins vegar, þegar á lcið, hóf þjóðin að hundsa þessi úreltu lög og fluttist í sjávarþorp- in án þess að spyrja kóng eða prest. Loks, eftir að vistarbandið var orðið haldlítið eða mark- laust, var það afnumið að hluta 1894, en hefur aldrei verið numið alveg úr lögum landsins, og formlega eru allir yngri en 21 árs enn með lögum skyldugir til þess að vinna hjá bænd- um. Stjórnmálaafskiptum Arnljóts var þó ekki lokið. A næstu níu árum breyttist pólitískt landslag og nýir menn komust í valdastóla. Nú deildu heimastjórnarmenn undir forystu Hann- esar Hafsteins og valtýingar um stöðu tilvon- andi ráðherra íslands. Hinir fyrrnefndu vildu ráðherra á íslandi, en þeir síðarnefndu að hann yrði í Kaupmannahöfn. Arnljótur var heitur heimastjórnarmaður og N-Þingeyingar kusu hann á þing 1900, þá 77 ára gamlan. Hins vegar komu veikindi í veg fyrir að hann kæmist suður í tæka tíð til þess að vera við atkvæðagreiðslu um málið. Varð fjarvera hans til þess að valtýingar unnu málið, þó um skamma hríð, en Hannes Hafstein varð fyrsti ráðherra íslands í Reykjavík 1904. Drengur eða þrjótur? Þótt Arnljótur næmi hag(auð)fræði ytra var lítið um atvinnulækifæri fyrir hagfræðinga á íslandi í þann tíma og þingmennska var aðeins sumarstarf annað hvort ár. Eftir þriggja ár veru á Alþingi og trúlofun hóf hann að læra til prests og vígðist eftir tvö ár. Hann þjónaði til dauðadags og búnaðist vel. Arnljótur skrifaði margt á ferli sínum, t.d. fyrslu ritgerð um rök- fræði á íslensku, og um áttrætt samdi hann stórnterka ritgerð urn peninga- og hagsögu Is- lendinga. Arið 1877 veitti Alþingi honum styrk til þess að rita bók um auðl'ræði. hina nýju fræðigrein, er hann hafði numið erlendis og var hún gefin út 1880. Þar byggir hann að mestu á riti Friðriks Bastiats, Harmoníes Ecpiiomiqes. Sá hafði tileinkað sér kenningar Adams Smith, en rit hans: Um auðlegð þjófi- anna. þarf líklega ekki að kynna. Arnljótur var umdeildur maður og kont þar margt til, hin hagl'ræðilega þekking virðist hafa innrætt honum skoðanir sem stönguðusl á við hugarfar og venjur landsins. Hann var kannski of róttækur. Auk þess hafði hann óvægið skaplyndi þar sem lítið fór fyrir mála- miðlunum. Hann þóttist ávallt viss í sinni sök og þess umkominn að segja öðrum til og það var kannski lítt fallið til vinsælda, þó menn hafi ávallt borið virðingu fyrir þekkingu og gáfum Arnljóts. Líklega Jýsir vísa séra Björns' Halldórssonar í Laufási vel áliti samtíma- rnanna á Arnljóti, en Bjöm var eldheitur fylgis- maður Jóns Sigurðssonar. Já, mér er um og ó um Ljót ég œtla ’ann bœði dreng og þrjðt Það er í honum gitll og grjót Itann getnr unnið tjón og bót. Fræði um auð Arnljótur skrifaði Auðfræði sem kennslubók um hugsun og aðferðir nýrrar fræðigreinar, fyrir þjóð í hagkerfi fornra hátta og afdala- mennsku. Bókin er fýrst og fremst ætluð skyn- ugum bændum og eru fræðin sviðsett í ís- lensku búnaðarsamfélagi. Hins vegar er Arn- ljóti mikið niðri fyrir og hikar ekki við að ráð- ast á atriði sem viðurkennd virtust í stjórnmál- um og gildismati Islendinga. Maðurinn fœðist ber og nakinn, alsnauður og alþurfi, ... en cí milli þarfar og fullnœgju, upphafs og endis liggur þatfleikinn, nytsem- in ... Þannig hefur Arnljótur umfjöllun sína á viðfangsefnum auðfræðinnar, skortinum og nytseminni eða leið mannsins til að fá þörfum sínum fullnægt. Þessi fræðigrein nytseminnar gerir þó ekki upp á milli þarfa fólks, enda eru þörf og óþurft, nyt og fánýti hlutir sem hver dæmir fyrir sig. I þessum fyrsta hluta hefst Arnljótur handa við að skilgreina tilgang og eðli hag(auð)fræði. Hann andmælir þeim al- þýðufræðum sem koma fram í málshættinum: margur verður af aurum api, en guðfræðingar hafa túlkað í mörgum lærðum bókum og prédikunum. Það að auður sé upphaf alls ills og sjálfselska sé löstur, og því sé auðsöfnun hluti af vél og táli heimsins sem kristilegum mönnum beri að forðast. Auðfrœðinni heftr oftlega verið borið ci brýn, að ht'm byggði á sjálfselsku mannsins og leiddi hann til auragirndar. Það er satt, að auðfrceðin kennir möntutm Itagsýni og hags- munctsemi, og sýnir þeitn, að auðurinn sé óntissándi þjpnn mannlegra frumfara og þjóð- menningar. Þctð er og satt, að Itúti telur sjálfs- elskuná gefna og meðskapqða manninum, en einmitt gefna honum til viðhalds og verndun- ar, til vegs og sóma ... Auðfrœðingur íekur manninn svo sem hann nú er. hejir verið og mun verða, veikan, skeikulah, ófullkominn, en jqfnfrcimt fratnförulan óg framfœran ... og yill vísa liontim vég framfaranna. Auðfræði skilgreinir auð sem mergð nyt- semda af andlegum og líkamlegum toga eða óskastein til að uppfyllaóskir þess sem á held- ur. Ahrif auðsins fara því eftir innræti eiganda eða eftir þeim htutum sem hann telur nyt- semdir. Ef óskir manna leiða þá til lágkúru og Um fyrirgreiðslupólitík Óneitanlega getur sumum þótt það vekja ánægjunka og enda mikilmannlega tílfinning í brjósti sór, að vita sig staddan á Aiþíngi með landssjóð i hendi og útbýta lands- mönnum úr honum eftir vild sínní, svo sem þá er hugull og mildur faðir skiptir brauð- j köku meðal barna sinna: að vita sig taka : fjárhald allra landsmanna, efla atvínnuveg- . ina, styrkja hinn veika, heyra bæn híns þurftuga. Að hugsa jafnan um mennina, en ; eigi um málín sjálf né málstaðínn, getur og verið næsta makráð hugsun og næsta vel ■ failin tí! vinfengis og vinsælda, en og jafn- framt löguð til hlutdrægni og fylgis eftir I geðþótta. Oftast er örðugra og óvínsælla að hugsa málin sjálf vel og vandlega, og . athuga grandgæfilega hvort eitt mál sé landsmál, eður sérstakt héraðsmá eður : einstaks manns, og fara með málin sem þau eru sjálf vaxin til,,.. þvf hverr sá er örr víil ; vera á hjálpinni og góðgerðarsemínni, og útbýtir tíl þess almannafé, hann hlýtur að vera jafhörr á aukning tolla og íþyngd skatta á herðar almennningi, þvf landssjóður er enginn ormur á gullí nó nokkur dalatótur. óhófs eða nísku og svíðingsháttar verður sök- inni ekki komið á óskasteininn heldur þann sem bar upp óskina. Auður gefur aðeins möguleika sem maðurinn verður að velja úr. en því meiri auð sem samfélag hefur umleikis þeim mun fleira er hægt að framkvæma og njóta. Þá er ekki rætt um líkamlegar girndir einvörðungu heldur einnig listir og fagurfræði eða þekkingu og vísdóm. I réttferðugum heimi án rána og gripdeilda hlýtur auður að vera ávöxtur iðjusemi og sparsemi, sem eru bæði kristilegar og auðfræðilegar dyggðir og leiða menn vart á glapstigu. Eigingirni lýsir í raun vilja manna til þess að heimurinn taki mark á óskum þeirra. Við- fangsefni auðfræðinnar er að lýsa og skil- greina hvernig eigingirni einstaklinga nýtist þjóðfélaginu til auðsköpunar og leiðir allar andlegar og verklegar framfarir. Löngun og vani skapa mannlegar þarfir. Þess vegna eru þarfir manna framstigular eða óseðjandi og aukast í takt við allar framfarir. Allt hefur þetta þann tilgang ctð maðurinn megi halda stöðugt áleiðis á framfarafegi menningar- innar. Auðfræðingar Lfklega hefur ekki reynst erfitt fyrir Arnljól að sannfæra íslendinga um gagnsemi auðs og eigingirni, enda voru áhöld um þann árangur sem stólræður presta höfðu skilað í fordæm- ingu þessara tála. Hins vegar átli eftir að útskýra hvernig auðfræðingar ætluðu að hlaða auði á menn og stuðla að framförum í þjóð- félaginu, og þar var við ramman reip að draga. Hvað vilja auðfræðingar? Auðfráiðingar kenna, að hverjum manni sé rétt og.frjálst, meðan hann meiðir eigi rétt né frelsi náungans. að neyta eftir eiginni vild sinni og viti ctllra hœfileika sinna, andlegra sem líkamlegra, svo og að njóta allra ávaxta verka sinha, hvort liann vill vinna einn sér eða ífélagi við aðrct ... Þeir kenna, að landslögin hqfi eigi annað og megi eigi annað gjöra í þessu efiti, en vernda og varðveita, friða og friðhelga mannrétt þennan og mannfrelsi þettci hjá einutn sem öllum í mannfélaginu. Þeir kenna og jafnframt, að hverr maður hafi ábyrgð af meðferð sinni á hœfileikum sínum, á hugsunum, orðum og gjörðum, ... / einu orði sagt, auðfrœðingar kenna þessi þrjú orð: frelsi, ábyrgð, réttlœti. Hugsun Arnljóts byggir á náttúrurétti eða náttúrulegum og meðfæddum réttindum hvers mannns sem ekki megi skerða. Mannréttindi eru arfborin eign hvers manns og höft sem skerða frelsi fólks er því sama og rán eða gripdeild. Þetta var í andstöðu við lögfræði- hugmyndir í þann tíma sem álitu mannréttindi afstætt atriði sem færi eftir úthlutun lögjafans á hverjum stað eða eftir því sem réttast væri hverju sinni. Þessar deilur, um hvort mannrétt- indi séu afstæð eður ei, eru miklu meira en karp um lögfræðileg formsatriði. Hér er um algert grundvalíaratriði að ræða sem enn er deilt um, t.d. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. En þar segjast Kínverjar og fleiri þróunarlönd geta skilgreint mannréttindi á annan hátt en Vesturlandabúar; ef þegnarnir hafa nóg að bfta og brenna þá er réttur til skoðana og tjáningar lítilvægur. Hins vegar, eftir auðfræði Arnljóts, er aflvaki hagsældar fólginn í þeirri trú að nátt- úrulegt frelsi leiði menn og þjóðir saman með 6 VÍSBENDING

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.