Frjáls verslun - 01.06.1941, Qupperneq 10
grafa skurðinn. Ferdinand de Lesseps, sá er
gróf Suez-skurðinn, tók að sér yfirstjórn fyrir-
tækisins og nú var stofnað voldugt félag, er
kallað var Panama-félagið. Lesseps viðhafði
scmu fjáröflunaraðferðina og áður við gröft
Suez-skurðarins og bauð út lán meðal almenn-
ings í Frakklandi. En það brást. Hann óskaði
eftir 400 millj. franka, en fékk aðeins 30 millj.
En Lesseps lét ekki hugfallast og hóf nú hinn
ákafasta áróður. Hann stofnaði sérstakt mál-
gagn fyrir félagið og fór sjálfur til Panama
ásamt konu sinni og tveim börnum til að skoða
landið og afsanna það, sem illar tungur höfðu
sagt um að landið væri svo óhollt mönnum, að
banvænt væri. Ferðin um Panama gekk vel.
Lesseps fór til Washington og hitti forseta
Bandaríkjanna, en hann vildi engan stuðning
veita og lét í ljósi að raunar bæri Bandaríkja-
mönnum að hafa allan veg og vanda af skurð-
greftri um amerískt land. Lesseps fór í heim-
leiðinni til Englands og Niðurlanda máli sínu
til stuðnings. Þegar heim kom hófst fjársöfn-
unin. Lesseps hélt stórveizlur og jós fé á báðar
hendur í blöðin og í umboðsmenn, er seldu hluta-
bréf félagsins, og í bankastjóra, sem þurfti að
smyrja. Endirinn varð einnig sá, að helmingi
meira fé fékkst en óskað hafði verið eftir eða
um 600 millj. frankar.
Verkfræðingafélag það, sem byggt. hafði
Suez-skurðinn, tók nú að sér framkvæmd verks-
ins og hófst það í marz 1881.
Erfiðleikarnir létu ekki bíða eftir sér. Fyrst
urðu vandræði með mannafla. Hvítir menn gátu
aðeins unnið að verkfræðilegum störfum. Indí-
ánar reyndust ónothæfir og Kínverjar reyndust
þollitlir. Reynt var að nota negra frá Vestur-
Indíum og þótt þeir væru lélegir verkamenn
varð að notast við þá. En hinir frönsku verk-
fræðingar voru afbragðs góðir. En sá var gall-
inn, að þeir týndu fljótlega tölunni. I Panama
var krökkt af flugum, sem fluttu með sér gulu-
sýkla og malaríu. Dingler yfirverkfræðingur
missti konu sína, son og dóttur á fáum vikum,
eftirmenn hans tveir dóu rétt eftir að þeir stigu
á land. Af 30 verkfræðingum, sem fyrstir komu,
voru 13 dánir eftir mánuð.
Breski konsúllinn í Panama fór eitt sinn með verk-
fræðingi til þess að líta á verkið og höfðu 22 menn
sér til fylgdar. Tuttugu af þeim veiktust og helming-
urinn dó. Aðeins tveiú komust aftur til bæjarins Pana-
ma, og voru það konsúllinn og verkfræðingurinn. Kon-
súllinn bauð verkfræðingnum til hádegisverðar og beið
lengi eftir honum og án árangurs, því að vex'kfræðing-
urinn dó um nóttina.
Verkinu miðaði hægt áfram. Fyrir utan flugnaveik-
ina komu í ljós ýmsir örðugleikar, sem urðu til þess
10
Verzlunarleiðir í Atlantshafi og Kyrrahafi
að kollvarpa þeim áætlunum, sem gerðar höfðu verið.
Menn komust nú að raun um, að ómögulegt mundi
vera að grafa skurðinn niður að sjávarmáli, heldur yrði
að breyta um aðferð og hafa hinn svonefnda skipa-
ctiga. En Lesseps gamli vildi ekki viðurkenna, að hon-
um hefði skjátlast, og vei'kinu var cnn haldið áfram
um stund.
f upphafi hafði gengið vel með fjársöfi.un. Spari-
fjáreigendur voru fúsir til að kaupa hlutabrjefin, senx
gáfu af sér 4% vexti og fengust þannig um 150 milj.
franka á ári. En brátt fór að kvisast, að elcki mundi
allt með feldu í Panama og verð hlutabréfanna tók að
lækka. Lesseps tók nú til sinna görnlu áróðursaðferða.
Hann ferðaðist til Panama og kom þaðan aftur með
góðar fi’egnir. Enn mútaði hann blaðamönnum og
stjórnmálamönnum i stói-hópum og kom að í franska
þinginu frumvarpi um, að Panamafélagið fengi heim-
ild til að stofna happdi’ætti sér til ágóða. Stjórnmála-
menn flæktust nú inn í öll þessi mál, og varð það síð-
an örlagarikt. En svo fór eftir mikið þref, að happ-
drættis fx-umvarpið náði samþykki þingsins og var það
þakkað hinum gegndarlausa mútuaustri til þingmanna
og alls konar hrossakaupum. En happdrættið heppn-
aðist ekki. Það var nú orðið opinbert leyndarmál, að
Panama-félagið væri að þi’otum komið og í febrúar
1889 var það úrskurðað gjaldþrota af skiptarétti París-
ar-borgar. Nú hófst eitt hið stórfeldasta fjársvikamál,
sem þekkst hefir. Sparifjáreigendur urðu óttaslegnir
og allir þeir, sem haft höfðu samband við félagið og'
þegið af því fé, komust i slæma klípu. Fjöldi manna
var hnepptur í varðhald og Lesseps gamli var dæmd-
ur i fangelsi. Stjórnmálamennirnir ultu um koll hver
af öðrum. Sjálft ráðuneytið varð að fai’a frá og um
tíma leit svo út, að sjálft lýðveldið væri í hættu. Á
þessum tíma var uppi í Frakklandi all-sterk hreyfing'
um að koma á konungsveldi og fengu stuðningsmenn
þess byr undir báða vængi, er upp komst um hina
gegndarlausu spillingu, sem ríkti í herbúðum lýðveld-
issinna. Panama-hneykslið, sem svo var kallað, var
mest um talað af öllu því, sem gerðist i Evrópu á þess-
um árum. Málareksturinn stóð lengi yfir og spillti
áliti Frakklands út á við.
Fi-akkar sögðu nú skilið við Panama og Bandaríkja-
menn tóku skurðgi'öftinn í sínar hendur. En einnig
þeim gekk erfiðlega, og 1907 var gripið til þess ráðs
Framh. á bls. 25.
FRJÁLS VERZLUN