Frjáls verslun - 01.06.1941, Blaðsíða 19
Ársfundur Verzlunaráðs íslands
Ársfundur Verzlunarráðs íslands var haldinn dag-
ana 4. og 5. maí síðastl.
Fyrir fundinum lágu, auk ven.iulegra ársfundar-
starfa, eftirfarandi mál:
Breyting á lögum V. I.
^Jcattamál.
Framkvæmd gjaldeyris- og innflutningshaftanna.
Milliþinganefnd í gjaldeyrismálum.
Störf Viðskiptanefndar.
Póstsamgöngur.
Á fundi þessum gengu úr stjórn ráðsins, samkvæmt
kjöraldri, þeir Hallgrímur Benediktsson, stórkaupm.,
Sveinn M. Sveinsson forstjóri og Garðar Gíslason
stórkaupm. Voru þeir allir endurkosnir. Til vara voru
kosnir þeir Eggert Kristjánsson stórkaupm. og Sigur-
liði Kristjánsson kaupm.
Skrifstofustjóri ráðsins gaf skýrslu um starfsemi
seinasta árs, og las upp reikninga starfsársins, sem
voru samþykktir í einu hljóði. Skýrði hann frá þvi, að
i árslok 1940 hefði ónafngreindur meðlimur komið á
fund formanns og afhent honum sparisjóðsbók með
kr. 10.000,00 innstæðu, sem gjöf til Verzlunarráðs ís-
lands. Lagði skrifstofustjóri fram eftirfarandi tillögu
frá stjórn V. í. —
„Stjórn V. í. leggur til, að með g'jöf þeirri, sem
ráðinu barst 31. des. 1940, frá ónafngreindum þátt-
takenda, að upphæð kr. 10,000,00, að viðbættum vöxt-
um, verði myndaður húsbyggingarsjóður, er nefnist
Húsbyggingarsjóður Verzlunarráðs Islands, að í hann
verði lagt til viðbótar kr. 10,000,00 af tekjum ráðs-
ins á árinu 1940. Stjórn ráðsins sé falið að búa út
skipulagsskrá fyrir sjóðinn, og leggja hana fyrir næsta
aðalfund“.
Var tillaga þessi borin undir atkvæði, og samþykkt
með samhljóða atkvæðum.
Fundarstjóri bað að hinum ónafngreinda gefanda
yrðu færðar þakkir fundarins, og sagðist hann vona,
að gefandinn yrði ánægður með ráðstöfun fundarins
á gjöfinni.
Sveinn M. Sveinsson forstjóri, sem var formaður
laganefndar þeirrar, sem stjórn ráðsins skipaði sam-
kvæmt samþykkt síðasta ársfundar, til þess að gera
tillögur um breytingar á lögum V. í., fylgdi frum-
varpi nefndarinnar úr garði. Lítilsháttar umræður
urðu um frumvarpið, en afgreiðslu var frestað' til
næsta dags, svo að fundarmönnum gæfist kostur á
að kynna sér einstök atriði laganna.
Næsta dag hófust umræður um skattamál. Frum-
mælandi var fjármálaráðherra, Jakob Möller. Gaf
hann ítarlegt yfirlit yfir starfsemi Alþingis í skattamál-
um, en lýsti því jafnframt yfir, að ekki bæri að líta
á endanlegar samþykktir sem stefnumál sjálfstæðis-
flokksins, flokkur sinn væri minnihlutaflokkur, sem
undir núverandi kringumstæðum yrði að láta sér lynda
að bjarga því, sem bjarga mætti.
Urðu talsverðar umræður í sambandi við skatta-
málin, og kom eftirfarandi tillaga fram:
FRJÁLS VERZLUN
„Fundurinn samþykkir, að fela stjórn ráðsins að
skipa nefnd til þess að athuga skatta- og útsvarslög
ríkisins, sérstaklega með tilliti til hinna miklu hlunn-
inda, sem samvinnufélögum er veitt umfram öll önnur
fyrirtæki. Nefndin skal skila áliti svo fljótt sem unnt
er“.
Ræðumenn studdu allir tillöguna og hvöttu stéttina
til þess að láta sig þetta mál miklu skipta.
Eggert Kristjánsson stórkaupm. gaf skýrslu um út-
svarsgreiðslur verzlunarfyrirtækja og starfsmanna
þeirra hér í bæ. Heildarupphæðin er kr. 1.685,000,
eða 37—38% af greiddum útsvörum. Sagði Eggert
Kristjánsson, að þegar útsvarsálagningu væri þannig
komið, væri ekki nema eðlilegt, að kaupsýslumenn
fylgdust vel með þessu máli. Var þá gengið til at-
kvæða um tillöguna, og hún samþykkt með samhljóða
atkvæðum.
Oddur Guðjónsson skrifstofustjóri gaf yfirlit yfir
framkvæmd gjaldeyris- og innflutningshaftanna, og
rakti gang þessara mála á síðastliðnu ári. Benti hann
á, hver sjónarmið stofnunarinnar hefðu verið á hverj-
um tíma, og hvei'nig ytri aðstæður hefðu nú um bil
torveldað frekari róður til frjálsari viðskipta. Auk þess
gerði hann gi'ein fyrir því samkomulagi, sem náðst
hefir við Breta um innflutning, og hvernig þeim inn-
flutningi yrði háttað.
Björn Ólafsson stórkaupm., sem átt hefir sæti í milli-
þinganefnd í gjaldeyrismálum, rakti störf nefndai'-
innar, og sýndi fram á, hvernig kringumstæður allar
hefðu breytzt frá því, er nefndin settist á rökstóla.
Skýrði hann frá aðalatriðum úr áliti minni hlutans.
Viðskiptanefnd, en i þeirri nefnd hefir Björn einnig
átt sæti, hefði hins vegar haft mjög erfiða samninga
með höndum. Vegna þess rasks, sem orðið hefir á við-
skiptalifinu, hefði oft orðið að taka upp samninga á
nýjan leik, og oft gengið erfiðlega að fá greið svör
við málaleitunum, sem frá okkar sjónarmiði lægju aug-
Ijós fyrir.
Eggert Kristjánsson stórkaupm. hafði framsögu um
póstmál. Rakti hann gang þeirra mála frá styrjaldar-
byi-jun, og sýndi fram á, í hvert öngþveiti mál þessi
væru komin. Lagði hann fram þessa tillögu:
„Ársfundur Verzlunarráðs íslands, haldinn í Kaup-
þingssalnum i Reykjavík, dagana 4. og 5. maí 1941,
samþykkir að beina því til stjórnar V. I., að hún
beiti sér fyrir því við rikisstjórnina, að póstsamgöng-
um við útlönd verði komið í betra horf en nú er“.
Þá var haldið áfram umræðum frá deginum áður
um lög V. I. Voru þau síðan boi'in undir atkvæði og
samþykkt breytingarlaus með samhljóða atkvæðum.
í fundarlok þakkaði formaður ráðsins fundarmönn-
um þann áhuga, sem þeir höfðu sýnt á störfum fund-
arins, og lét í ljós þá ósk, að allir kaupsýslumenn á
landinu, sem starfa í anda frjálsrar verzlunar, sam-
einuðust í eina órjúfanlega fylkingu, svo þeim mætti
verða auðið að standa af sér allar skúrir rangsleitni
og hafta, og mætti takast að halda vörð um þann arf,
sem þjóðinni væri hvað dýrmætastur, frjáls, haftalaus
viðskipti i anda Jóns Sigurðssonar forseta.
(Heimild: Skrifstofa V. í.).
19