Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1941, Side 31

Frjáls verslun - 01.06.1941, Side 31
er kenndur vib. Einnig settust þeir að við ósa Missisippi og nefndu það svæði Louisiana. Seinna seldi Napo- leon I þetta svæði til Bandaríkjanna. Á þessum tíma var Colbert ráðherra í Frakklandi, en hann var hinn slyng- Colbert, sem efldi við'- skipti Frakka. asti fjármálamaður. Colbert reyndi af öllum mætti að efla verzlunar- flota Frakka, og urðu Frakkar brátt hinir þriðju í röðinni. En ekki leið á löngu þar til Frakkar lentu í styrj- öld við Englendinga, sem ásældust nýlendur þeirra, og urðu að lúta í lægra haldi. Bæði Hollendingar og' Frakkar urðu því að sjá af ávöxt- unum af hinu stórfellda brautryðj- endastai'fi sínu í hendur Englend- inga. Sjálfir lögðu Englendingar ekki mjög mikla áherzlu á að stofn- setja nýjar nýlendur. Þeir kusu held- ur að grípa gæsirnar, eftir að aðrir höfðu alið þær. En verzlun Englend- inga við löndin handan hafs, gerðu Atlantshafið að hinum mikla vegi viðskiptanna milli hinna tveggja heimsálfa. Sú verzlun hefir jafnan síðan verið lífæð Englands. Og í dag stendur orustan um Atlantshafið, or- ustan um það, hvort þessi lífæð verð- ur sundur skorin eða hvort England fær bjargast enn á þeim viðskipt- um, sem þeir komu á fót sjálfir með vopni í hönd fyrir mörg hundruð ár- um síðan. Ludvig XV., er steypti Frakk- landi út í stríð, sem eyðilagði ný- lenduveldi þess. Þótt svo hafi verið talið á síðari tímum, að Englendingar hafi flest- um þjóðum betra lag á að stjórna nýlendum, þá fórst þeim ekki vel við nýlendurnar vestan hafs. Þeir léku þær illa, líkt og Spánverjar verkum, að verzlun nýlendnanna var ekki eins ill og við hefði mátt búast, einn skeifunagla", sagði enski stjói'n- málamaðurinn Pitt, hinn eldri. Heima- landið átti að sjá fyrir öllu slíku. Þó var ýmislegt sem gerði það að höfðu gert. í upphafi var verzlun nýlendnanna frjáls, en smátt og smátt voru settar fleiri og fleiri hömlur og svo fór, að England fékk algerlega einokun á allri verzlun. Nýlendunum var þess utan strang- lega banað að reka nokkurn iðnað, sem gat orðið til þess að þær yrðu sjálfum sér nógar og þyrftu ekki á enskum vörum að halda. Þannig máttu nýlendurnar í Ameríku hvorki vinna járn né stál. „Ameríkumenn hafa ekki einu sinni rétt til að smíða Helztu heimshafnir og hlutföll við- skipta þeirra á friðartímum. því bæði var það svo, að skip frá nýlendunum máttu sigla til Eng- lands eftir vörum og svo var smygl- að ógrynni af varningi til landsins. Talið er að níu tíundu af öllu því tei, sem fluttist til nýlendnanna, hafi verið smyglað. Svo kom frelsisstríðið og Englend- ingar misstu nýlendur í Norður- Ameríku. Bjuggust menn þá við, að verzlunin milli landanna færi minnk- andi, en svo varð ekki. Fjandskapur- inn gleymdist og viðskiptin yfir haf- ið margfölduðust. Á Napóleonstímunum óx mjög verzlunarfloti Bandaríkjanna. Ensk skip gátu þá ekki sýnt sig í höfnum meg'inlandsins, en aftur var vinátta með Napóleon og Bandaríkjamönn- um. Skip að vestan sigldu nú til meginlands Evrópu með nýlenduvör- ur og jókst þannig í sífellu þýðing viðskiptaleiðarinnar yfir Atlantshaf. Síðan komu gufuskipin, sem breyttu siglingunum svo mjög. Árið 1819 fór fyrsta gufuskipið yfir Atlants- haf og 1840 stofnaði Cunard-félagið til fastra ferða með farþega og póst milli Liverpool og Bandaríkjanna. „Savannah", fyrsta gufu- skipið, sem fór yfir At- lantshafið. Fjölda margir af þeim íslendingum, sem um og eftir miðja seinustu öld leituðu vestur um haf, fóru einmitt með þessum skipum vestur. Um þetta leyti fundu menn upp skipsskrúfuna og hjólskipin voru lögð niður. Á síðustu tímum komu svo mótorskip- in til sögunnar. Árið 1914 var lokið við Panama-skurðinn, sem tengir Atlantshaf og Kyrrahaf. Suður-Amer- íkuríkin hafa einnig á síðustu árum oi'ðið verulegur liðui' í heimsverzl- uninni.. Spænsku nýlendurnar héldu lengi tryggð við heimalandið, en svo fór þó, að þær urðu þreyttai' á hinu þunga verzlunaroki og brutust til frelsis með vopnum. Englendingar viðurkenndu óðara sjálfstæði þeirra og létu í té mikið fjármagn til að koma atvinnuvegunum á laggirnar. Að Atlantshafi liggja þær heims- Panamaskurðurinn. álfur, sem lengst eru komnar á sviði iðnaðar og viðskipta. Atlantshafið hefir orðið þjóðleið stórverzlunarinn- ar og svo mun það verða um fyrir- sjáanlega framtíð. (Meira.) FRJÁLS VERZLUN 31

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.