Frjáls verslun - 01.12.1941, Blaðsíða 1
frjals
12.TBL. 3. ARG. 19 4 1 VERZLUN
Líkt og það ár sem er að líða mun Verzlunarmannafélag
Reykjavikur halda áfram starfsemi sinni í þágu félagsmanna.
Mikið hefir unnist á, á skömmum tíma, en félagið á þó mörg
verkefni óleysf, sem bíða síns tima.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur er stéttarfélag heillar stéttar.
Oar á sér engin aðgreining stað á æðri eða lægri, þeim sem
verkum ráða og hinum sem vinna í þeirra þjónustu, í þessu felst
mesfi sfyrkur félagsins og er vonandi að svo megi vera enn um
langan aldur.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur vill safna þeim, sem fást
við verzlunarstörf, undir eitt merki. »Frjáls verzlun« á að vera
tengiliður milli félagsins og félagsmanna. Félagsheimilið er ætíð
opið öllum félagsmönnum og gestum þeirra. Félagið á þannig
tvö fæki sem miða í þá átt að styrkja félagslífið og efla sam-
heldni milli félaganna.
V. R. vonar að á hinu nýja ári megi starfsemin enn eflast
og það sendir nú öllum félagsmönnum kveðju sina og óskar þeim
árs og friðar.
»Frjáls verzlun« óskar lesendum sínum góðs og gæfuríks
árs.