Frjáls verslun - 01.12.1941, Blaðsíða 21
utan um hann og spurðu þeir hann spjörunum
úr. Um 1935 kom Pedersen með þá uppástungu,
að mönnunum yrði kennt að fara eftir teikning-
um og að smíða í málma, svo að mennirnir gæti
lært grundvallarreglurnar, sem þeim tókst ekki
að læra vegna þess að kreppan skall á og hætt
var við iðnnemafyrirkomulagið. Svo margir
menn komu til þessarar kennslu, að félagið varð
að leigja stærsta samkomusalinn í Burbank fyr-
ir hana.
Þegar fyrsta 10 vikna námskeið Pedersens
var á enda, heimtuðu nemendurnir meira. Hinn
framtakssami Dani varð því fyrsti námsstjóri
félagsins og gat boðið hverjum starfsmanni að
læra betra starf á félagsins kostnað. Kaliforníu-
fylki og skólastjórnin í Burbank sýndu málinu
þann stuðning að lána skóla bæjarins eftir
venjulegan skólatíma. Nú ganga 9000 Lockheed-
starfsmenn á námskeið, sem standa í sex mán-
uði. Það er algengt að sjá hópa verkamanna
standa og bíða þess að börnin fari heim úr skól-
unum.
Nokkur þúsund logsuðumanna, sem byrjuðu
með 60 centa tímakaup, hafa nú komizt í flokka,
sem gefa helmingi hærra kaup, en 200 fyrrver-
andi vélsmiðir eru nú orðnir teiknarar og upp-
finningamenn. Mennirnir hafa ekki gengið á
skóla hjá Lockheed og látið svo ginnast í vinnu
hjá öðrum fyrirtækjum. Þeir hafa sýnt tryggð
sína með því að vera fastheldnastir allra verka-
manna í iðnaðinum.
Flugvélar eru smíðaðar af flokkum, þúsund-
um flokka og þarf hver þeirra að hafa fyrirliða.
Það var erfitt að finna fyrirliðana, meðan aukn-
ingin var sem örust. En nú sér Pedersen um að
alltaf sé nóg til af þeim.
Fyrst var það oft versti þröskuldurinn, að
viðvaningarnir áttu erfitt með að venjast því
að vinna í flokkum. Þeir voru annaðhvort of
seinir á sér eða fljótir, eða kom ckki saman.
Margir hættu eftir nokkrar vikur. Þá leitaði fé-
lagið til Robert C. Storment, sem var í þjónustu
menntamálanefndar Los Angeles.
„Þenna vanda á að leysa áður en maðurinn
er ráðinn“, sagði hann og síðan hafa allir menn,
sem leitað hafa vinnu hjá Lockheed, orðið að
finna náð fyrir augum hans, því að hann ræð-
ur allt starfsfólkið.
„Skapferlisprófið", segir Storment til skýr-
ingar, „vinsar úr þá menn, sem eru uppstökkir
og eyðileggja samvinnuna innan vinnuflokk-
anna“. Níutíu af hundraði af þeim, sem segja
upp eða er sagt upp, hafa ekki hið rétta skap-
ferli fyrir vinnuna.
Gáfnaprófið er til þess að skilja hina gáfuðu
frá heimskingjunum. Það kemur fyrir að mað-
ur er of gáfaður fyrir verksmiðjuvinnu og þá-
er hann látinn vinna á teiknistofunni.
En áhugi félagsins er ekki á enda, þegar búið
er að velja starfsmanninn. Eitt af því, sem sann-
færir Bill Clark um að atvinnurekandinn er
maður eins og hann, er „táradeildin", eins og
það er kallað. Starfsmenn geta alltaf leitað til
yfirmanna sinna, ef þeir eru í vanda staddir —
vilja byggja hús, kaupa bíl o. s. frv. Félag starfs-
mannanna á í sjóði 385.000 dollara, sem starfs-
mennirnir geta fengið lán úr, ef þeir þurfa á
að halda.
Ef Bill Clark heldur að hann hækki ekki eins
ört og hann á skilið, getur hann krafizt þess, að
rannsókn fari fram á vinnubrögðum sínum. Ef
hann kann ekki við starfið, getur hann fengið
eitthvað annað, sem hann telur sér falla betur.
Hann getur óskað þessa sjálfur eða fyrir milli-
göngu verkalýðsfélags síns.
í Lockheed-verksmiðjunum er deild af A. F.
L.1) og eru um 60% starfsmannanna í henni.
Þessi aðferð hefir reynzt hin þarfasta við að
finna menn í nýjar stöður, sem skapazt hafa
vegna vígbúnaðarins. En það eru fleiri hæfir
og fúsir til að ganga undir Stormentspróf en
þeir, sem hafa ráð á að bregða sér til Burbank,
og því er hægt að láta reyna sig í 1500 skrif-
stofum víðsvegar um landið.
Kennslan kostar Lockheed-félagið 300.000
dollara á ári og þykir ódýr. Eitt af því bezta,
sem leiðir af henni, er hið ágæta samkomulag
milli starfsmanna og atvinnurekenda. „Maður
þarf ekki að gera verkfall til að fá hærri laun“,
segir Pedersen. „Hann fær þau á auðveldari hátt
með því að læra starf, sem er betur borgað“.
1) American Federation of Labor —'eldra og hæg'-
fara fagsamband Bandaríkjanna. Hið róttækara er Con-
gress for Industrial Organisation.
FRJÁLS VERZLUN
21