Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1941, Síða 6

Frjáls verslun - 01.12.1941, Síða 6
Alþingissalurinn gamli í Menntaskólahúsinu. Bjarni Thorarensen er stórhneykslaður á þeirri mótbáru meiri hlutans að það sé ekki hægt að hafa nógu góðan mat á Þingvöllum. Hann segir að óþægindi af matnum mundu helzt koma nið- ur á þingmönnum úr embættismannaröð, en þó ekki loku skotið fyrir „að þeir geti búið til handa sér góðan dagverð, því það er alkunnugt, að höf- uðsmennirnir á fyrri öldum gjörðu góðar veizl- ur á þessum stað“. Deilan um Alþingisstaðinn var háð um land allt og þó ekki sízt meðal Islendinga í Khöfn. Hér börðust „rómantík" og „realismi”. Rökin voru óneitanlega meirihlutans megin, eins og framtíðin sýndi, en málstaður Bjarna var hjart- ans mál þeirra, sem mest óttuðust Dani. Jón Sigurðsson mælti með Reykjavík. Hann sá að Reykjavík var vaxandi bær. Hún var höfuðborg framtíðarinnar og þótt ekki blési byrlega 1841 fyrir íslenzkri verzlunarstétt, sá hann þó af framsýni sinni að þeir tímar mundu koma, að þar risi upp íslenzk verzlunarstétt í íslenzkri höfuðborg. Reykjavíkurmennirnir urðu ofan á, þrátt fyr- ir harðvítuga andstöðu. Bjarni dó 1841 og segir Jónas Hallgrímsson í eftirmælunum eftir hann: Hlægir mig eitt það, að áttu því uglur ei fagna ellisár örninn að sæti og á skyldi horfa hrafnaþing kolsvart í holti fyrir haukþing á bergi. Það þætti hart nú, ef andstæðingar látins stjórnmálamanns væru nefndar uglur í eftir- mælum eftir hann og hæðst að þeim. í augum Þingvallamanna hlaut Reykjavíkurþingið að verða kolsvart hrafnaþing í holtunum við Reykjavík og betra að deyja en lifa slíkt. ★ Hundrað árum eftir þessa deilu rís önnur ný, en ólíkt minni og máttlausari. Það var ágrein- ingurinn um aðsetur ríkisstjórans, æðsta manns þjóðarinnar. Árið 1841 varð það ofan á að Al- þingi skyldi haldið í Reykjavík, en 1941 var svo ákveðið að ríkisstjórinn skyldi búa á Bessastöð- um! Nú eins og 1841 voru færð fram söguleg rök, þó alveg öfug við það, sem var 1841. Nú þótti sumum sem hinar sögulegu minningar, sem tengdar eru við Bessastaði, gerðu staðinn óvist- legri fyrir bústað handa æðsta manni þjóðar- innar. En nú var enginn „hiti“ í deilunni og henni lauk með því að einn af verzlunarforstjór- um Reykjavíkur gefur Bessastaði til ríkisstjóra- bústaðar. Þá var ekki lengur á móti mælt, fyrst staðurinn fékkst með þeim kjörum. Tímarnir breytast! 6 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.