Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1941, Side 8

Frjáls verslun - 01.12.1941, Side 8
Malakkaskagi. kvæmlega skipulagt að því leyti að hvert hérað leggur til sinn skerf, bændur af ökrunum, skrif- stofumenn úr bæjunum, synir stjórnmálamanna og erfðaprinsa — allir verða að hlýða kallinu, ef þeirra númer kemur upp. Hér er enginn mun- ur gerður á stéttum eða flokkum. Engin sérrétt- indi eru þar látin haldast. Heilsufar og happ- drætti ræður hér öllu. Hvað foringjunum við- víkur, þá eru þeir ekki framar sérstök klíka, en þetta hefir mikla þýðingu. Mestur hluti jap- anskra foringja er af lágum stigum og hækkar í tign vegna yfirburða. Tæplega 10 af hundraði foringjanna eru af aðalsættum. Herinn er eins- konar þjóðher og í honum eru fulltrúar þjóðar- innar allrar. Að flestu leyti eru japanskir for- ingjar ólíkir því, sem í Bretlandi gerist. Margir þeirra raka sig aðeins einu sinni í viku. Þeir fá léleg laun. Herforingi (general) fær 6,600 yen á ári, en það svarar til rúmlega 356 dala. Foringjar eru valdir á einkennilegan hátt. Það eru þrjár leiðir til þess að komast á heræf- ingaskóla. I fyrsta lagi getur hver 14 ára dreng- ur, sem hefir lært skyldunámsgreinar sínar í hernaði, komizt í yngstu deild, en þar er kennsla 8 ókeypis, svo allir hafi efni á að sækja skólana. Valið er úr eftir samkeppnisprófi. Einnig er hægt að komast í herskólann á aldrinum 16—18 ára að loknu námi í framhaldsskóla. I þriðja lagi geta herskyldir menn komizt í skólann allt til 22 ára aldurs hafi þeir staðizt mjög þungt próf. Það er einsdæmi að óbreyttir liðsmenn geti komizt þannig beina leið inn í raðir foringj- anna. Slíkt er ekki þekkt annars staðar. Eng- inn foringi er útnefndur fyrr en hann hefir gegnt herþjónustu í 8 mánuði sem óbreyttur liðsmaður. Það er líka nær einsdæmi að ein- göngu fari eftir hæfni hverjir verða foringjar, en ekki eftir aldri eða ættgöfgi. Japanir geta orðið ofurstar á mjög ungum aldri. Herinn á sér sín lög og sitt vald og hefir það oft komið hart niður á stjórnmálamönnum. Tvær eru ástæður til þessa. í fyrsta lagi hefir hermálaráðgjafinn þau ómetanlegu forréttindi að geta hvenær sem er stað’ið í beinu sambandi við keisarann, en slíkt er ekki leyft öðrum ráð- gjöfum borgaralegrar stéttar. Þessara sérrétt- inda er ekki getið í hinni japönsku stjórnskip- an, en er orðið til fyrir hefð og byggist á því að PRJÁLS YERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.