Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1953, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.01.1953, Blaðsíða 8
Fyrirtæki sem þetta var alger nýjung hér á landi og vakti mikla athygli. Reistir voru þrír stórir olíu- geymar, og sáu Islendingar algjörlega um smíði þeirra. Annað eins stórvirki hafði ekki fyrr verið unnið á því sviði í landinu. Byggð voru hús, gevmslur og vinnuskálar, smíðuð 300 m. löng bryggja, lagður 600 m. langur vegur o.m.fl. 011 þessi mannvirki voru að mestu leyti fullbúin í árslok 1927 og þótti fljótt og vel af hendi leyst. Þann 21. desember lagðist 5 þús. smálesta skip við stöðina og var afgreitt á þann hátt, að olíunni var dælt úr því og upp í olíugeymana á landi. Var þetla í fyrsta skipti, sem olía var flutt hingað í tankskipi. Voru þetta vissulega þáttaski 1 í olíumálum lands- manna. Um sama leyti voru settir upp nokkrir smærri geymar í kaupstöðum og kauptúnum út um Iand, og byggð önnur mannvirki í sambandi við þá, svo sem bryggjur, olíuleiðslur o.fl. Samhliða þessum framkvæmdum var svo smíðað fyrsta olíuflutningaskip Islendinga, er hlaut nafnið „Skeljungur“. Smíði þess var nauðsynlegur hlekkur í framkvæmdunum, þar sem því var ætlað að annast olíuflutninga frá stöðinni í Skerjafirði til geymanna úti á landi. Á meðan á framkvæmdum þessum stóð, var unnið að undirbúningi að stofnun félagsins. H.f. Shell á íslandi var svo formlega stofnað 14. janúar 1928. Tilgangur þess var að starfrækja verzlun með benzín, steinolíu og skyldar olíutegundir. Stofnendur félags- ins voru Magnús Guðmundsson, Hallgrímur A. Tul- íníus, Björgúlfur Ólafsson, Gísli J. Johnsen og Hall- grímur Benediktsson. Fyrsti framkvæmdastjóri félagsins var Hallgrímur A. Tulíníus, og gegndi hann því starfi til 1935, er hann lét af störfum sökum heilsubrests. Tók þá nú- verandi framkvæmdastjóri, Hallgrímur F. Hallgríms- son, við störfum hans, en hann hefur unnið hjá fé- laginu frá stofnun þess. Vöxtur og viðgangur félagsins. Eins og landslýð er kunnugt, hafa orðið stórfelldar breytingar hér á landi á þeim 25 árum, sem Iiðin eru frá stofnun félagsins. Olíuþörf landsmanna hefur aukizt gífurlega með auknum vélakosti og bættum samgöngum. Sala allra olíutegunda, nema ljó:aolíu, hefur farið sívaxandi, og á síðustu árum hafa bætzt við áður óþekktar tegundir, t.d. flugvélabenzín og brennsluolía. Félagið flytur nú inn flestar tegundir olíu og auk þess margt fleira, eins og t. d. olíuasfalt og ýmislegt til lyfjagerða. Árið 1928 nam heildarsala á olíum á öllu landinu tæpum 15 þús. smálestum, en á s.l. ári nam hún 182 þús. smál. Af því magni flutti H.f. Shell inn 58 þús. smál. Má sjá af þessu hversu olíunotkun landsmanna hefur aukizt gífurlega á síðustu 25 árum. Starfsemi félagsins er dreifð um land allt. Geymar fyrir olíu og benzín hafa verið settir upp á öllum höfnum landsins, og litlir benzíngeymar eru meðfram Framh. á bls. 11. Núverandi stjórn H/F Shell, talið frá vinstri: Haliffrímur Benediktsson, Björgúlfur Ólafsson, Hall^rímur A. Tuliníus og Hallgrímur F. Hall grímsson. t • -ðsté íMm oT’9 '■.f-í" 8 FRJÁLS verzlun

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.