Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1953, Síða 12

Frjáls verslun - 01.01.1953, Síða 12
GÍSLI HALLDÓRSSON ARKITEKT: UPPBV6GING ENSKRA BÆJA UM MÁNAÐARMÓTIN nóv.-des. s. 1. fór ég til Englands og Danrnerkur. Ég hafði hugsað mér að fara þessa ferð fyrir einu og hálfu ári vegna ýmissa verkefna, er ég hafði með höndum, en vegna anna gat ekki orðið úr ferð þessari fyr en nú. Ég hafði að sjálfsögðu hugsað mér, að ferð þessi yrði farin í sumarfríi, en varð nú að jólafríi. Jafn- framt því að kynna mér svipuð verkefni og ég hafði með höndum, hafði ég hugsað mér að kynna mér uppbyggingu hinna mörgu nýju bæja, sem nú eru í byggingum í Englandi. Bæir þessir eiga flestir að verða á stærð við Reykjavík, þegar lokið er við byggingu þeirra. Öllum er þeim ætlað það hlutverk að taka á móti fólki úr stórborgum landsins og stöðva þar með útþennslu þeirra. ÁRIÐ 1946 voru sett lög í Englandi, þar sem á- kveðið var að byggja upp þessa nýju bæi alveg frá grunni. Ástæðan fyrir þessu var fyrst og fremst vegna þeirra miklu erfiðleika, sem hinar stóru og gömlu borgir hafa skapað þar í landi með tilliti til um- ferðar, fjarlægðar fólks frá vinnustöðvum, þéttbýlis o.fl. Á stríðsárunum höfðu margar borgir einnig orðið fyrir alvarlegum loftárásum, og var því ætlun- in að reyna að sameina það tvennt, að flytja húsnæð- islaust fólk í þessa nýju bæi, svo og að rýma heil hverfi, sem nauðsynlegt var að rífa til grunna og endurbyggja, vegna þess að ekki er hægt að telja sum hverfin í þessum stórborgum íbúðarhæf fyrir fólk nú á dögum. Nefndir voru settar á stofn til þess að athuga á hvern hátt væri heppilegast að koma þessum lögum í framkvæmd. Mörg álit voru samin og beindust þau að sjálfsögðu flest að London, enda mest þörfin að leysa úr því alvarlega ástandi, sem þar hefur verið 12 i áratugi, en varð þó enn ískyggilegra um og eftir síðasta stríð. Endirinn á þessum undirbúningi varð því sá, að ákveðið var að byggja 11 nýja bæi í Englandi og Wales, þar af 7 í námunda við London, og áttu þeir beinlínis að taka á móti fólki þaðan. Víðast voru valdir staðir, þar sem smáþorp höfðu myndazt og höfðu þegar góðar sam- göngur við London. Þegar þessir bæir verða full- byggðir, eiga þeir flestir að rúma um 50—60 þús. íbúa. Þó er undantekning með tvo þeirra, sem ætlaðir eru fyrir um 80 þús. íbúa. Framkvæmdir hafa nú staðið yfir í 5 ár, þar ineð talin undirhúningsvinna og skipulagning. Ég skoðaði þrjá af þessum bæjum, en sá bær, sem ég kynnti mér einna bezt, heitir Crawley, og er í 50 km. fjarlægð frá miðri London. ÁÐUR en ákveðið var að byggja þarna einn af þessum nýju bæjum, var Crawley lítið þorp, með 5 þúsund íbúa í sjálfu þorpinu, en um 4 þús. íbúa dreifða um næsta nágrenni, sem hinn nýi bær mun ná yfir. Þorp þetta hafði myndazt, eins og mörg önnur þor[), báðum megin við þjóðveginn, er liggur frá London til Brighton. Þessi vegur er að sumarlagi einhver sá fjölfarnasti af öllum þeim vegum. sem liggja frá London. Það var því nauðsynlegt að taka allmikið tillit til hans í skipulagningu á hinum nýja bæ. HINN NÝI bær hefur verið skijiulagður í 11 sjálf- 'ítæð hverfi, þar af 9 íbúðarhverfi, 1 aðalverzlunar- hverfi, sem er um leið miðbik bæjarins, og 1 iðn- aðarhverfi. Hvert íbúðarhverfi er byggl upp sem sjálfstæð heild með nánu sambandi við miðbæinn, eftir þvervegum, en ágætt samband við iðnaðarhverf- ið eftir hringbraut, er öll hverfin liggja að. Hring- braut þessi liggur á milli íbúðarhverfanna, sem liggja FRJÁLSVERZLUN Oísli Halldórsson, arkltckt, liefur skrifað eftirfarandi g;rein fyrir FRJÁESA VERZFUN. Hann er nýkominn heim frá Englandi, þar sem hann kynnti sér uppbyffK- ingu hinna nýju bæja, sem EnKlending;ar eru að reisa ojj; vakið hafa mikla athygjli. Lýsir Gísli fyrirkomu- la«;i o«; skipulagninKu eins af bæjum þessum, svo og húsagerð.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.