Frjáls verslun - 01.01.1953, Page 21
Fyrrverandi stjórn off varastjórn F.Í.I. Sitjandi frá vinstri: Sveinn B. Val-
fells, Kristján Jóh. Kristjánsson, formaður, off Sigurður Waaffe. Standandi
frá vinstri: Gunnar Friðriksson, Axel Kristjánsson, MaRnús Ví^Iundsson o{í
Sveinn Guðmundsson.
ísfenzkra iunrekenda 20 ára
Verksmiðjuiðnaður hér á landi er ung atvinnu-
grein, sem hefur á skömmum tíma þróazt í að vera
ein af máttarstoðum þjóðarhúskaparins, enda er iðn-
aðurinn einn af þremur aðalatvinnuvegum lands-
manna. Mun yfir 40% þjóðarinnar liafa framfæri sitl
af iðnaði. Sýnir þetta betur en nokkuð annað mikil-
vægi iðnaðarins fyrir okkar fámenna þjóðfélag.
Iðnrekendur skildu snemma þörfina á að bindast
samtökum, þótt fáir væru.
Félag íslenzkra iðnrekenda var stofnað 6. febrúar
1933, og var aðalhvatamaður að stofnun þess, Sigur-
jón Pétursson á Álafossi, er þá var einn mesti iðju-
höldur hér á landi. Hann varð fyrsti formaður fé-
lagsins og gegndi því starfi í 12 ár samfleytt, en þá
tók við núverandi formaður, Kristján Jóh. Kristjáns-
son.
Stofnendur F.l.I. voru 14 verksmiðjur í Reykjavík
og nágrenni, en brátt hætlust fleiri við út um land
allt.
Verksmiðjur þær, er stóðu að slofnun félagsins,
greiddu á stofnári þess um 600 þús. krónur í vinnu-
laun. Tíu árum síðar voru verksmiðjur innan félags-
ins orðnar 68 að tölu og greiddu um 8 millj. kr. í
vinnulaun á ári. Við seinustu áramót voru innan
samtakanna 144 verksmiðjur, er greiddu á árinu 1951
um 45 millj. kr. í vinnulaun. Hafa launagreiðslur
verksmiðja innan F.I.I. þannig 75 faldast frá því er
félagið var stofnað. Má nokkuð af því marka þróun
verksmiðjurekstursins í landinu.
Vöxtur og viðgangur samtakanna hefur aukizt með
hverju ári, og síðan 1940 hefur verið starfrækt sér-
stök upplýsinga- og fyrirgreiðsluskrifstofa í Reykja-
vík. Eitt af höfuðverkefnum skrifstofunnar er að
kynna íslenzkar framleiðsluvörur, en á því sviði hef-
ur mikið og gotl verk áunnizt.
Samtökin virðast vel skipulögð og starfshættir allir
til fyrirmyndar. Framkvæmdastjóri samtakanna nú
um átta ára skeið hefur verið Páll S. Pálsson, lög-
fræðingur.
lðnsýningin s.l. hausl gaf almenningi nokkra inn-
sýn yfir þróun iðnaðarins og hvar við erum á vegi
staddir í þeim málum. Var sú sýning í heild iðnaðin-
um til mikils sóma.
Með slofnun iðnaðarhankans, er hrált tekur til
slarfa, sjá samtökin eitt af baráttumálum sínum um
nokkur árabil rælast. Er vonandi, að hann eigi eftir
að verða íslenzkum iðnaði mikil lyftistöng á ókomn-
um árum.
FRJÁLS VERZLUN óskar F.Í.I. og íslenzkum iðn-
aði allra heilla á tuttugu ára afmæli samtakanna.
Cr. M.
FRJÁLS VERZLUN
•21