Frjáls verslun - 01.08.1953, Page 8
gefin olía við strendur íslands, en Rússarriir virtust
ekki síður tortryggnir þá en þeir eru í dag, því að í
hvert skipti, sem þeir tóku olíu, þurftu þeir að rann-
\ saka hana til að ganga úr skugga um, að ekki hefði
yerið settur í hana sjór eða vatn. Þá höfðu Rússarnir
það fyrir venju að stíga aldrei fæti um borð í skip
; bandamanna sinna.
I' 1 ; ■■ " . V • , ' .. Í
| Á hóteli með fullu kaupi.
Olíiiskipið lá nú um kyrrt í Hvalfirði í tvo mánuði
jen fór síðan með skipalest til Skotlands. Þar var beð-
; ið eftir annarri lest, sem hélt til New York. Þangað kom
I Helgi í marzlok 1944 og lét þá afskx-á ;sig af olíuskip-
inu. Eftir að hann hafði verið í landi í viku var hann
búinn að fá atvinnu hjá Standard Oil Companv, sem
kom honum fyrir á hóteli í New York. Þar dvaldi hann
í þrjár vikur á fuilu káúpí og háfði það rólegt. Það
skilyrði var þó sett, að hann yfirgæfi ekki hótelið frá
því kl. 9 á morsnana til kl. 5 á daginn, og varð hann að
vera tilbúinn með litlum fyrirvara að fara til sjós, þeg-
ar kallið kæmi. Með Helga á hótelinu voru tveir Is-
lendingar, og höfðu allir landarnir ráðið sig sem há-
seta hjá Standard Oil Co.
Og svo var hótelvistin úti einn góðan veðurdag, þeg-
ar Helga var gefin aðvörun um að pakka saman og
halda sem skiótast um borð í 8 þúsund smálesta olíu-
skip, sem hafði verið að koma úr þurrkví. Annar Is-
lendingur, Geir Jónsson, var einnig um borði Var
ferðinni heitið til Venezuela til að sækja olíufarm og
var siglt frá New York í skipalest. Myrkur var, þegar
lagt var af stað og mikil þoka. Helgi hafði lagt sig til
svefns en vaknar snögslega við hávaða og hristing.
Hann flýtti sér upp á þiljur með björgunarbelti og sá
þá hvar stórt skip var að sigla aftur á bak, en það
hafði be^sýnilega rekið stefnið í olíuskipið. Var önn-
ur skipalest að koma inn til New York um svipað
leyti, og hafði hún riðlast eitthvað í þokunni. Skemmd-
irnar á olíuskipinu voru það litlar, að ákveðið var að
halda áfram ferðinni. Ekki hafði verið siglt nema
svo sem hálftíma, þegar það ótrúlega skeði — annar
áreks'ur, og nú urðu skemmdir það miklar, að fara
varð í þurrkví, og tók viðgerðin tíu daga. Þegar Helgi
frétti, að skip hans ætti að sigla eitt síns liðs til
Venezuela, sagðist honum ekki hafa litist á blikuna,
því krökt var af kafbátum á þessari siglingaleið. Ferð-
in gekk þó slysalaust, en ekki var alltaf siglt bein-
ustu leið.
Helgi var nú í sífelldum siglingum næstu mánuð-
ina og kom víða við. Sótt var olía til Hollenzku Vest-
ur-Tndíu og farið með hana til flotabækistöðvar á
Kúbu. Þá var haldið til Balboa í Panama og síðan til
H.eírí. I.oftsson sem 2. stýrimaður um borð í s.s. Remsen Heights
Colombia í Suður-Ameríku, en þar var tekinn hrá-
olíufarmur, sem fluttur var til New York. Skildu þar
leiðir þeirra Helga og Geirs, sem fór á stýrimanna-
skóla í New York. Helgi fór einnig af skipinu og var
um kyrrt í stórborginni um tíma.
Ekki leið þó á löngu áður en Helgi hafði ráðið sig
á annað skip, sem var af Liberty gerð og í eigu ALCOA
félagsins. Sigldi hann með því nokkra mánuði, aðal-
lega í Karabiskahafinu og kom m.a. til Brezku Guiana,
Trinidad og Kúbu. Skipti Helgi nú tvívegis um skip
næstu fjóra mánuðina, en á þeim tíma kom hann bæði
til Englands og Frakklands. I Antwerpen var hann
staddur um það leyti, sem Þjóðverjarnir skutu sem
flestum eldflugunum yfir til Englands, en sumar þeirra
fóru aldrei alla leið eða voru beinlínis ætlaðar Holl-
endingum og Belgum. Helgi var t.d. sjónarvottur að
því, þegar ein eldflugan lenti á kvikmyndahúsi í Ant-
werpen, og fórust þar um 500 manns.
Stýrimaður hjá ameríska hemum.
I júní mánuði 1945 fór Helgi á stýrimannanám-
skeið í New York og var á því fram í október. Lauk
hann námskeiðinu, en fckk ekki leyfi til að gangast
undir próf, þar sem hann var ekki bandarískur þegn.
Erfiðleikar voru nú miklir á því að fá vinnu sem
stýrimaður, þar sem stríðinu var lokið og búið að
leggja fjölda skipa. Lagði Helgi því land undir fót og
freistaði gæfunnar vestur í Kaliforníu. Keypti hann
sér farmiða með lest til San Francisco og þreifaði fyr-
ir sér með atvinnumöguleika þar í borg. Hafði hann
heppnina með sér, því ekki var hann búinn að vera
nema skamma stund í borginni, þegar hann var ráð-
inn stýrimaður af bandaríska hernum. Um tíma hafði
landherinn fleiri skip í sinni þjónustu en sjálfur flot-
inn, en skipsmenn voru þó ekki skráðir í herþjónustu.
Helgi var því næst sendur til New Orleans, þar sem
64
FRJÁLS VERZLUN