Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1953, Blaðsíða 32

Frjáls verslun - 01.08.1953, Blaðsíða 32
Ilendur úr djúpinu. — Ljósm.: Hjálmar R. Bárðarson. fullkomna mynd. Hér er ekki átt við þann áhuga, heldur áhugan á að reyna nýjar myndavélar, nýjar gerðir af filmum, af pappír, af framköllurum o.s.frv. Mikið er nú t.d. rætt um nýjustu framkallarana, sem talið er að ged margfaldað svo ljósnæmi filmanna, að hægt sé að taka myndir svo til í myrkri. Einkan- lega hafa Ameríkumenn verið mjög áhugasamir í þessu, en árangurinn valdið miklum deilum. „Heita súpan“ (hot soup) er gælunafn á þessum framköll- urum, og munu þeir vantrúaðri á nýtni þeirra vera allmiklu fleiri en þeir trúuðu. — Þessi tækniáhugi á ljósmynduninni er auðvitað ekki á neinn hátt víta- verður, því ekki er neitt óeðlilegt, að sumir hafi áhuga á efnafræðilegum tilraunum, og það er ef til vill lil- viljun, að þeir hafa valið ljósmyndaefni að verkefni. Hinsvegar er rétt að geta þess, að ekki munu vera nema mjög fáir þessarra Ijósmyndatækr.i-áhugamanna, sem einnig geta tekið myndir svo nokkru nemi. Sannleikurinn í þessum málum mun vera sá, að margir þeirra, sem fremst standa í myndrænni ljós- myndun á alþjóðavettvangi, nota mjög einfaldan ljós- myndaútbúnað og ákaflega takmarkaðan fjölda filmu- og framkallara-tegunda. Hinsvegar þekkja þessir menn út og inn sín tæki. Þau leika í höndum þeirra, af því þau eru gamlír ferðafélagar. Myndirnar verða marg- ar hverjar til að prýða veggi alþjóðaljósmyndasýning- anna um allan heim, ekki vegna þess að myndavélin var „model 1953“ með öllum nýtízku búnaði, heldur vegna þess, að maðurinn að baki myndavélarinnar þekkir tækin sín það vel, að hann veit hvað hann má bjóða þeim, og hann þarf ekki að eyða dýrmætum tíma í tæknilegar bolialeggingar, heldur einbeitir huga sín- um við myndina sjálfa, upjibyggingu hennar, línur og fleti myndflatarins, jafnvægi myndarinnar o.s.frv. Hvað merkja nú öll þessi hugtök í heimi ijósmynd- unarinnar? Svarið er mjög einfalt. Nákvæmlega sama og þau merkja i málaralist, einkanlega þó í svartlist- armyndum, ef um svart-hvíta ljósmyndun er að ræða. Of langt mál yrði hér að fara út í nánari skýringar þessarra hugtaka, þótt freistandi væri að ræða þau sérstaklega frá sjónarmiði ljósmyndunarinnar. Enda er myndræn ljósmyndun aðeins ein grein ljósmyndun- arinnar, þótt hún óneitanlega beri hæst á alþjóðavett- vangi í samkeppnum þjóða á milli á alþjóðasýning- unum. Þó skal einnig varast að fylgja allt of mikið föstum reglum í uppbyggingu mynda, þótt góðar geti verið til stuðnings og skilnings á myndunum. Sagt hefur verið, að þessar reglur og lögmál um línur og fleti komi að beztum notum hjá þeim, sem hefur kynnt sér þær og þekkl vel, en er búinn að gleyma þeim það mikið aftur, að hann er ekki þrælslega bundinn þeim. Og hver var svo mergur málsins í þessu stutta rabbi? Nokkur sundurlaus liugtök um ljósmyndun, ætluð jafnt þeim, sem aðeins hafa ánægju af góðum mynd- um, og einnig þeim, sem líka eru færir um að taka sh'kar myndir. Það er nauðsynlegt hverjum þeim, sem tekur myndir, að þekkja vel myndavélina sína og film- ur þær og framkallara, sem hann hefur vanizt á að nota. Einnig er gagnlegt að lesa greinar ljósmynda- blaða og skoða myndir eftir vel hæfa Ijósmyndara, og þannig læra að mela að verðleikum góðar ljósmvndir, reyna að gera sér sjálfum grein fyrir sínum eigin skoðunum á því, hvers vegna ein mynd er betri en önnur. Á þennan hátt tekst bezt að skapa eigin skoð- anir, sjálfstæðar skoðanir, sem geta orðið að gagni í eigin myndatökum, án þess að þurfa að eftirlíkja aðr- ar myndir. Enginn má vænta þess að verða nokkurn tíma í fremstu röð ljósmyndara (áhuga- eða atvinnu-ljós- 88 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.