Frjáls verslun - 01.08.1953, Qupperneq 25
riiigiii'iiiii linelgi§t
að MÖiig'iuiiii
I>aiikar um IIJÖItT II A VSSO \ KjötuKan
Einn af heiðursfélögum Verzlunarinannafélags
Reykjavíkur, Hjörtur Hansson kaupmaður, varð sjö-
tugur þann 24. ágúst s.l. Hjörtur er Reykvíkingum að
góðu kunnur fyrir hans mikla og óeigingjarna starf í
þágu fjölmargra félagasamtaka í höfuðstaðnum. Er
margs að minnast úr ævi þessa heiðursmanns nú þegar
hann hefur fyllt sjöunda tuginn.
Hjörtur Hansson er fæddur 24. ágúst 1883 í svo-
nefndum „Hullersbæ" í skuggahverfi Austurbæjar í
Reykjavík. Foreldrar hans voru þau Hans Adolph Guð-
mundsson hóndi og verkamaður og Helga Hjartardótt-
ir, ættuð frá Gufunesi í Mosfellssveit. Var inóðir hans
að nokkru leyti alin upp hjá Magnúsi Stephensen í
Viðey.
Þriggja mánaða gamall fluttist Hjörtur með for-
eldrum sínum að Gufunesi, en þar hjuggu þau í fimm
ár eða til ársins 1888 að þau fluttu aflur til Reykja-
víkur. Hafði faðir Hjartar keypt nýlegan bæ af Sigurði
Friðrikssyni steinsmið. Var hærinn eftir það oftast
nefndur Hansbær og stundum Litla-Klöpp, en hann
stendur enn og er fyrir ofan húsið nr. 24 við Lauga-
veg, þó hann teljist nú til Klapparstígs.
í Félagsprentsmiðjunni.
Hjörtur missti föður sinn árið 1894 og móður sína
1909. Hefur hann átt heirna í Revkjavík alla sína ævi
að undanteknum þeim fimm árum, er hann var í Gufu-
nesi. Hann var tíu ára, þegar faðir hans dó, en var
eftir það hjá móður sinni til fjórtán ára aldurs. Skild-
ust leiðir með honum og móður hans, þegar henni var
ráðlagt af lækni að vera í sveil sökum sjúkleika, er
hún þjáðist af. Var henni komið fyrir á góðu sveita-
heimili uj)]ii á Kjalarnesi, en þar var hún allt til
dauðadags. Fimmtán ára fór Hjörlur til móðurbróður
síns, Hjartar Hjartarsonar trésmíðameistara og konu
hans Sigríðar Hafliðadóttur, en þau voru bæði ættuð
fró Gufunesi. Var Hjörtur hjá þeim til 17 ára aldurs.
Þegar eftir fermingu fór Hjörlur að nema jirentiðn í
prentsmiðju Einars Benediktssonar skálds, en var
kölluð ,,Dagskrár“-prentsmiðja og dró nafn af blaði
því, er Einar gaf út og hét „Dagskrá“. Hjörlur var
ekki nema 13 ára, þegar hann hóf vinnu í prentsmsiðj-
unni, en þar var hann í þrjú ár eða til ársins 1899.
Réðist hann þá í Félagsprentsmiðjuna, sem Halldór
Þórðarson bókbindari álti í þann tíma, og var Hjörtur
þar í önnur þrjú ár. Varð hann þá að hætta við prent-
iðnina sökum snerlis af blýeitrun, er hann hafði feng-
ið, og fór hann eftir ráðum læknis. Þar sem Hirti sótt-
ist nám þetta mjög vel að dómi yfirmanna hans og
starfsbræðra, fannst honum sárt að þurfa að yfirgefa
þessa iðn og þá framtíðarmöguleika, sem hennar virt-
ust bíða.
Langur vinnudagur hjá Brydesverzlun.
Árið 1902 réðist Hjörtur til I.P.T. Brydesverzlunar
í Reykjavík, og hefst þá ferill hans sem verzlunar-
maður. Fyrstu árin vann þar sem byrjandi við ýmis-
konar störf, er féllu til, en auk þess var hann við af-
greiðslu í gömlu búðinni. Þarna ægði saman, eins og
í svo mörgum búðum í þá daga, alls konar matvöru,
búsáhöldum, járnvörum, pletlvörum, lömpum, vín-
föngum, tóbaks- og sælgætisvörum ásamt ýmiskonar
niðursuðu. Ennfremur seldi verzlunin kol, steinolíu,
landbúnaðarvörur og margskonar vörur lil þilskipa.
Álnavaran var höfð í sérstakri deild. Árið 1907 var
gerð breyting á verzlunarhúsunum og þau bygp.ð upp
að nýju í það horf að utan, sem þau eru í dag, en sem
kunnugt er, þá eru þar nú til húsa veiðafæraverzlun-
in Geysir og O. Johnson & Kaaber. Var bygging þessi
með' nýtízku sniði og ekkert til sparað hvað allan frá-
gang snerti, hvort sem um var að ræða utanhúss eða
innan, enda hafði ekki áður sézt hér jafn skrautleg
FRJÁLS VERZLUN
81