Frjáls verslun - 01.08.1953, Blaðsíða 36
Kristján Einarsson
framkv.stjóri varð sex-
tugur 1. júlí s.l,
Kristján er fæddur að
Stakkadal í Rauðasands-
hreppi, 1. júlí 1893,
sonur lijónanna Einars
Sigfreðssonar bónda og
konu hans Elínar Ólafs-
dóttur. Hann ólst upp
við lítil efni, stundaði
nám við lýðskólann á
Hvítárbakka og síðar
Menntaskólann í Reykja-
vík, en varð að hætta
námi vegna veikinda, er hann las undir stúdentspróf.
Lengst af hefur starfsferill Kristjáns verið bundinn
við saltfisk. Fyrst starfaði hann við útflutningsnefnd-
ina gömlu, en var síðar í mörg ár umboðsmaður Buckl-
er Brothers hér á landi. Þegar þeir hætlu, varð hann
framkvæmdarstjóri útflutningsdeildar Alliance, og
blómgvuðust svo þau viðskipti undir stjórn hans, að
Alliance varð þá einn stærsti saltfiskútflvtjandi lands-
ins.
Þegar Sölusamband ísl. fiskframleiðenda var stofnað,
var hann einn af stofnendum þess. Varð hann þegar
einn af þremur framkvæmdarstjórum fvrirtækisins og
hefur verið það síðan. Það er ekki lítil ábyrgð lögð á
herðar ])eim mönnum, sem annast eiga sölu á aðalút-
flutningsvöru landsmanna. En Kristján hefur revnzt
þeim vanda vaxinn, og hefur haldgóð þekking hans á
saltfiski og saltfiskverkun, dugnaður hans og góðar
gáfur komið þar að góðum notum. Fyrstu starfsárin
ferðaðist hann milli fiskstöðva landsins, skoðaði salt-
fisk, mat og verðlagði, og kynntist þá til hlýtar allri
saltfiskvcrkun og meðferð hans. Síðar, sem fram-
kvæmdarstjóri S.Í.F., hefur hann ferðast árum samari
út um lönd og álfur, kynnzt óskum kaupenda og mark-
aðsmöguleikum, og öðlazt þannig alhliða þekkingu í
starfi sínu.
Kristján Einarsson á þakkir skilið allra þeirra, sem
vinna að framlciðslu sjávarafurða, fyrir mikið og gott
starf í þeirra þágu. Það var þeim mikill fengur, að
hann skyldi veljast til starfa við þennan aðalatvinnu-
veg landsmanna. Hann hefur með starfi sínu hjá S.Í.F.
flutt þjóðarbúinu milljónir, sem annars hefðu farið
forgörðum í harðvítugri samkeppni, og verða störf
hans seint fullþökkuð eða metin að verðleikum.
Þó Kristján hafi með starfi sínu hjá S.Í.F. reist sér
þann minnisvarða, er halda mun nafni hans á lofti,
hefur hann við margt fleira fengizt um dagana. Hann
hefur rekið verzlun hér í Reykjavík, komið upp frysti-
húsi á Drangsncsi og rekið þar verzlun og ált mótorbát
og gert hann út. Idann er meðeigandi í síldarverksmiðj-
unni á Djúp.avík, einn af stofnendum eimskipafélags-
ins Jöklar h.f., og á stríðsárunum keypti hann ásamt
fleirum Sænska frystihúsið í Reykjavík, og er einn af
eigendum þess.
Kristján er bókhneigður og ljóðelskur, mikill lax-
veiðimaður og unnandi alls þess, sem íslenzkt er. Hon-
um er lagið að koma auga á fegurðina í öllu og alls-
staðar og heillast af henni. Vofkvöld við ána, sólarlag
92
FRiAtff VBftZliUN