Frjáls verslun - 01.08.1953, Blaðsíða 40
Öll byrjun er erfiS, sagSi þjójurinn, er byrjaSi á
því aS stela steSja,
ÞÝZKUR MÁLSHÁTTUR.
Vits es þörj
þeim víSa ratar.
ÚR HÁVáMÁLUM.
•
Kennarinn: Þér hafið fimmtán sekúndur til umráða!
Nefnið eins marga hluti og mögulegt er, sem koma
fyrir í pari.
Nemandinn: Sokkar, skór, hanzkar — brjóstahald-
arar.
•
Ej einhver sparkar í afturhlulann á ySur, þá getiS
þér veriS viss um aS þaS er vegna þess, aS þér eruS
fyrir framan.
DET BEDSTE.
ÁríSandi er aS íhuga vandamáliS gaumgæfilega, áS~
ur en hafizt er handa, þrí uS þá hefur maSur þegar
leyst þaS til hálfs.
Karl: „Mér finnst ég kannast við andlit yðar. Ég
hef hitt yður hér áður, að ég he)d?“
Georg: „Mjög sennilegt, ég bý hér!
Fyrirtæki, er símsendi afturköllun á nýlegri pöntun,
fékk svohljóðandi svarskeyti: „Þér verðið að sýna |iol-
inmæði og bíða. Það eru 500 afturkallanir á undan
yður.“
Allir vilja lifa lengi, en enginn vill telja sig gamlan.
Sigga litla hló, þegar kennarinn hennar las upphátt
söguna um manninn, er synti þrisvar sinnum yfir ána,
áður en hann neytti morgunverðar.
,,Þú efast þó ekki um, að reyndur sundmaður geti
þetta ekki?“, spurði kennarinn móðgaður.
„Nei, nei,“ svaraði Sigga, „en ég er forviða á því,
að hann skuli ekki synda ána í fjórða sinn. yfir á
bakkann, þar sem fötin hans voru.“
„Frjáls Verziun‘é
Otgefandi: Verztunarmannafélag Reykjavíkur.
FormaSur: Guðjón Einarsson.
Rilstj.: Gunnar Magnússon og Njáll Símon-
arson.
Ritnefnd: Birgir Kjaran, form., Geir Hallgríins-
son, Gunnar Magnússon, Njáll Símonarson
og Þorbjörn Guðmundsson.
Skrifstofa: Vonarstrætj 4, 3. hæð, Reykjavík.
Sími 5293.
BORGARPRENT
96
FRJÁUS VERZLLUN