Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1961, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.11.1961, Blaðsíða 28
litlu niáli máli og illa var það séð ef ekki var róið taktfast og hávaðalítið. Eftir að vélbátarnir komu til sögunnar upp úr aldamótum, voru nótabátarnir dregnir áleiðis þangað sem síldar var leitað, en þá var þeim sleppt úr togi og róðurinn hóst. Nótabát- arnir höfðu stýri með langri stýrissveif og var alltaf stýrt í róðri. Bátnum fylgdi svokallað spækju- spil. Þetta var nærri sívalt kefli, sem náði yfir bát- inn þveran miðskips, í endum þess voru járntollar, sem féllu í járnlegur í borðstokkum, og á endum voru járngjarðir til að varna klofnun. Nokkuð frá báðum endum á keflinu voru ferköntuð göt i gegn og stóðust eigi á í keflinu, þannig að þegar spækj- unum var stungið í gegnum þau mynduðu þær kross, önnur lárétt hin lóðrétt. Með þessum spækj- um var spilinu snúið þannig að fjórir menn spiluðu, tveir og tveir hvor á móti öðrum. Tóinu var þrí- vafið um kcflið, og einn maður tók af. Heldur var aðdráttaraðferð þessi scinvirk, en örugg. Notkun sveifarspils í nótabátunum var óframkvæmanleg, því hvergi var hægt að hafa þau þar sem þau voru ekki fyrir nót og árum. Spilkeflið og spækjurnar lágu undir nótinni í bátnum og var strax sett í skorður, þegar búið var að kasta. Ennfremur var í bátnum rúlla, scm sett var á borðstokk, þegar nótin var köfuð inn. Sömuleiðis nokkrir járnbentir trékútar, tó og dregg. Frammi á stafnpalli lá langur og sterkur kaðall og fjórflauga dregg á cnda, sem hékk á borðstokk. Þetta voru landfestar nótabátsins. Annar framá- ræðarinn var dreggmaður, það var hans hlutverk að festa bátinn við land þegar kastað var. Oft kom það fyrir, að hann varð að fara fyrir borð þar sem vond var landtaká og vaða sjóinn upp undir hend- ur til lands með dreggið í fanginu, leita þar að not- hæfri festu, gæta þess að ckki losnaði og færa ef með þurfti. Þetta þótti illt verk og hraustum einum hcnt, enda þurftu dreggmenn oft að húka tímum saman holdvotir og skjálfandi á landi, þegar báta- vélamennirnir sveittust á spilinu við aðdráttinn. Þegar nótin var lögð í bátinn, var aðdráttartóið lagt fyrst í löngum lykkjum miðskips á botninn, síðan var nótin lögð í lykkjum, sem náðu súða á milli, og var vandaverk að hlaða nótinni þannig, að búlki væri ekki óhæfilega hár og nótin vel lögð til kasts. Þessu verki stjórnuðu nótkastarar jafnan og bjuggu þannig sjálfir í hendur sér. Korkateinninn var lagður skutmegin, og honum kastaði stýrimaður eða nótabátsformaður eins og hann var oftast kall- aður. Ég hef nú lýst nótabátnum allrækilega, tækj- um hans og áhöfn og verkaskiptingu. Á nótabátnum voru oftast 8 menn, þó kom það fyrir að þeir voru aðeins 7. Spilbáturinn cr fylgibátur nótabátsins og tengd- ur við hann með dráttartaug, en annars róið tveim árum. í spilbátnum er annað aðdráttartó nótar- innar, og er cndi þess festur við nótareyrað, sem ofan á liggur í nótabátnum. Það, sem einkennir spilbátinn sérstaklega, er spilið. Það er úr járni, á einum fæti, sem gengur niður í gegnum næstfremstu þóftu, og fellur endinn á fætinum í skorður niðri við kjöl. Þetta er tannhjólaspil með tveim sveifum og mótstöðuloku, sem hindrar, að það geti snúizt til baka. Svokölluð „ballansspil" höfðu útbúnað, sem létti verkið, en þau voru víst fágæt. í spil- bátnum var sams konar landfestarútbúnaður og í nótabátnum, á honum voru vcnjulega 3 menn, og einn þeirra formaður. Síldarleit Þá eru það loks bassabátarnir tveir, venjuleg tveggja manna för, norskar skektur. Auk bassans, er á hvorum báti einn ræðari. Embættistákn bass- ans, ef svo mætti að orði komast, er síldarlóðið. Það er lítið, perulaga blýlóð, um það bil 800 gr. að þyngd, fest á örmjóa, sterka, þríþætta snúru, cn snúran er undin upp á ferstrenda grind, er snýst um ás, sem er framhald af skaftinu. Síldarlóðið var „asdictæki“ þeirra gömlu bassanna, en það var tilfinningin í fingurgómunum, sem tók við boðun- um neðan úr djúpinu frá síldartorfunum, um stærð þeirra, útbreiðslu og þykkt. Ilinn þandi strengur frá lóðinu titraði og skalf, þegar hann skarst í gegnum síldartorfurnar, og kölluðu bassarnir það „stuð“. Því fleiri og þéttari sem stuðin voru, þeim mun meiri síld. Það var næsta furðulegt, live beztu bassarnir voru naskir að finna á þennan hátt, hve síldar- torfurnar voru þéttar og fljótir að kanna stærð þeirra og hreyfingar. Annað tæki höfðu bassarnir líka til hjálpar við síldarleitina, það var sjókíkir- inn. Þetta var málmhólkur, um það bil 1 metri á lengd, víðari í annan endann, um 10 þml. í þver- mál. Þeim enda var lokað með venjulegu rúðugleri, og var tækið þannig notað, að víðari endanum með glerinu var stungið niður í sjóinn, en kíkt í hinn. Einkum var þetta gert, þegar vindur gáraði yfirborðið og sjóskyggni var slæmt, einnig þegar kannað var síldarmagn í lásum. Lóðið var þó aðal- könnunartækið, en eitthvert gagn mun þó hafa ver- 28 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.