Frjáls verslun - 01.11.1961, Page 36
Athafnamenn og frjálst framtak
J
Tryggvi
Tryggvi Ólafsson cr fæddur 30.
október 189!) að Litla-Skarði í
Stafholtstungum. Foreldrar hans
voru Olafur Kjartansson, bóndi
þar, og kona hans, Þórunn Þórð-
ardóttir. Börn þeirra hjóna voru
níu, og er Tryggvi vngstur þeirra.
Tryggvi missti föður sinn á
unga aldri og fluttist þá með móð-
ur sinni og systkinum niður í
Borgarnes og ólst þar upp. Eftir
/ermingu fluttist hann til Reykja-
víkur. Hann stundaði nám við
Verzlunarskóla íslands og útskrif-
aðist þaðan 1918. Tryggvi starfaði
fyrst sem skrifstofumaður hjá
Jóni Þorlákssyni, verkfræðingi, og
síðar hjá vegamálastjóra.
Haustið 1924 fluttist haiin lil
Hafnarfjarðar, og hóf þar kola-
verzlun. Um svipað levti reisti
hann lifrarbræðslustöð í Hafnar-
firði til bræðslu á lifur frá togur-
um, en 1927 lagðist sú starfsemi
niður vegna þess að farið var að
bræða lifur um borð í togurunum.
Árið 1928 fluttist Tryggvi aft-
ur til Reykjavíkur og stofnaði
með Þórði bróður sínum Kola-
firði, og er það danskur maður,
sem er lífið og sálin í þeim tilraun-
um. Vonandi er, að þetta hepnist
og vcrði ekki aftur látið falla nið-
ur; í því er hin stórkostlegasta
framför. Á einni öld mætti, ef til
vill, gjöra landið að skóglendi, ef
vel væri að verið.
Ólafsson
söluna s.f. Og um sama leyti stofn-
uðu þcir, í félagi við aðra, fisk-
veiðahlutafélagið Hcimi, sem gerði
út togarann Barðann. Fjórum ár-
um síðar tóku þeir við rekstri
Fylkis h.f., sem gcrði út togarann
Belgaum og síðar togarann Fylki.
Nokkrum árum síðar stofnuðu
þeir, með öðrum, fiskveiðahluta-
félagið Ask.
Árið 1936 komst Tryggvi í sam-
band við amerískt lyfjafirma, sem
notaði mikið af þorskalýsi, bæði til
sölu í flöskum og einnig til að
vinna úr því vitamín. Þá var ekki
farið að framleiða A og D vita-
mín efnafræðilega (synthetiskt), en
íslenzka „vertíðarlýsið“ var þá
mun D-vitamínríkara, en lýsi sem
framleitt var annars staðar. Með
fjárhagslegri aðstoð þessa firma
reistu þeir Tryggvi og Þórður lýs-
isvinnslustöð í Reykjavik árið
1937, og stofnuðu Lýsi h.f., sem
Tryggvi hefur stjórnað síðan. Síð-
ustu ár hafa þeir Pétur Péturs-
son og Ólafur Tryggvason orðið
meðeigendur og meðstjórnendur
fyrirtækisins.
Tilgangurinn með stofnun Lýsis
h.f. var fyrst og fremst sá að verzla
með þorskalýsi, gera það sem hæf-
ast lil útflutnings, með flokkun
eftir gæðum og vítamíninnihaldi,
og á annan hátt að fullnægja scm
bezt kröfum kaupenda og skapa
þannig meira verðmæti til handa
framleiðendum. Starfsemi var haf-
in í lýsisstöðinni með kaldhreins-
un og frekari vinnslu á lýsi og
lifur. Síðar var bætt við tækjum
til framleiðslu á lifrarmjöli og lil
bræðslu á mör.
Félagið hefur nýlega keypt vél-
ar til eimingar á vítamíni úr lýsi
(molecular distillation). Enn frem-
ur rekur það lýsisherzlustöð og
fóðurblöndun, í félagi við aðra.
Félagið hefur frá byrjun sclt sjáli't
og flutt út framleiðslu sína, fyrst
aðallega til Bandaríkjanna, en
seinni árin einnig til annarra
landa. Sérstök áherzla hefur ætíð
verið liigð á að selja lýsið sem
mest unnið, ýmist sem með-
alalýsi eða fóðurlýsi. Hefur mikill
hluti framleiðslunnar verið flutt-
ur út í tunnum og smærri umbúð-
um.
Árið 1942 gerðist Tryggvi með-
stofnandi að hlutafélaginu Garði
í Sandgerði, og 1944 meðstofnandi
að hlutafélaginu ísbjörninn í
Reykjavík.
Kona Tryggva er Guðrún, dótt-
Magnúsar kaupmanns Sæmunds-
sonar. Eiga þau þrjú börn: Ólaf,
verksmiðjustjóra, kvæntan Ruth
Ólafsson, Erlu, gifta Pétri Péturs-
syni, framkvæmdastjóra, og
Svönu, gifta Agli Snorrasyni,
kaupmanni.
36
FRJÁLS VEUZLUN