Frjáls verslun - 01.01.1963, Qupperneq 15
Síld landað á Auslfjörðum með nýjum tækjum
betri. Allir bændur þekkja merkar tilraunir og ár-
angursríkar, sem gerðar liata verið á litareiginleik-
um gærunnar. Þessar framfarir má þakka íslenzkum
vísindamönnum, sem unnið hafa að ræktunartil-
raunum íslenzks sauðfjár árum sarnan með svo
ágætum árangri, að störf þeirra eru þekkt jafnvel
langt út fyrir landsteinana. Jarðvegsrannsóknii' und-
anfarinna ára eru einnig farnar að sýna góðan ár-
angur. Byrjað er að leiðbeina bændum með notkun
áburðar á tún, og eru þeim þannig spöruð mikil
útgjöld og tryggður bættur árangur af áburðarnotk-
un. Það er mjög ánægjulegt, þegar árangur vísinda
cr viðurkenndur eins og Samband islenzkra sam-
vinnufélaga gerði á síðastliðnu ári með sinni höfð-
inglegu gjöf til jarðvegsrannsókna að upphæð 1
milljón króna.
Lagður er grundvöllur að beitilandarannsóknum
og svipað má segja um ræktunartilraunir, korn-
rannsóknir og margt fleira.
Það er ekki sízt að þakka íslenzkum vísinda-
inönnum, að landbúnaðurinn stendur á tiltölulega
öruggum grunni þrátt fyrir að ýmsu levti erfiðar
aðstæður frá náttúrunnar liendi.
íslenzkur iðnaður hefur ]iví miður ekki notið
innlendrar vísindastarfsemi eins og skyldi hingað
til. Að vísu byggist hver ný iðngrein á nýrri tækni,
sem á rætur sínar að rekja til vísindastarfsemi er-
lendis. Þó má ekki gleyma því, að iðnaðarrann-
sóknir okkar íslendinga hafa gegnt mikilvægu hlut-
verki, þótt fyrst og fremst liafi enn verið um þjón-
ustustarfsemi að ræða. Kanna þarf þau hráefni,
sem flytjast til landsins og meta verður gæði frarn-
leiðslunnar. Ávallt hefur þó verið unnið nokkuð
að sjálfstæðum iðnaðarrannsóknum og þær aukast
stöðugt. Jarðefni hafa verið könnuð og grundvöllur
lagður að nýjum iðngreinum. T. d. þekkja flestir
þær allýtarlegu rannsóknir, sem fram hafa farið á
framleiðslu á kísilleir úr Mývatni. Gætu þær vel
orðið undirstaða að álitlegum iðnaði.
Atvinnuvegirnir uppbyggiast á vísindum og tækni
Það væri fróðlegt að geta skyggnzt nokkuð inn
í framtíðina og hugleitt, hver þörf okkar fyrir vís-
indi verður þá. Eg tel vafalaust, að við þurfum
eigin vísindastarfsemi í mjög vaxandi mæli eins og
aðrar þjóðir. Þetta sést strax, þegar við lítum á
lágmarksþörf okkar á næstu árum. En við skulum
ekki aðeins líta fram um 5 eða 10 ár, heldur skul-
uji} við reyna að skyggnast t, d, fram til næstu
15
FR.TÁLS VEIÍZIjCN